Félags- og vinnumarkaðsráðherra úthlutar styrkjum til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála
Bjarni Benediktsson félags- og vinnumarkaðsráðherra hefur ákveðið að úthluta styrkjum til sex verkefna á sviði jafnréttismála. Heildarfjárhæð styrkjanna er tíu milljónir króna. Styrkirnir eru veittir á grundvelli reglna um úthlutun styrkja sem félags- og vinnumarkaðsráðherra veitir til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála.
Þau verkefni sem hljóta styrk að þessu sinni eru:
- UN Women á Íslandi. Karlmenn og jafnrétti: – 2 milljónir króna
Gerð hlaðvarpsþátta á vegum UN Women á Íslandi, með það að markmiði að virkja karlmenn í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna.
- Freyja Vilborg Þórarinsdóttir doktorsnemi við H.Í. – 2 milljónir króna Jafnréttistengdar fjárfestingar: Hlutverk lífeyrissjóða í að stuðla að jafnrétti kynjanna í atvinnulífinu
Greining á stefnu lífeyrissjóða á sviði kynjajafnréttis ásamt þróun á hagnýtum leiðbeiningum fyrir stofnanafjárfesta.
- Kvennaár 2025 – 2 milljónir króna
Styrkur til að standa fyrir ýmsum viðburðum á vegum grasrótarsamtaka kvennahreyfingarinnar, aðstandenda kvennaverkfalls 2023.
- Kvenréttindafélag Íslands – 1,5 milljónir króna
Verkefni á vegum Kvenréttindafélags Íslands (KRFÍ) með það að markmiði að auka áhrif ungra kvenna og kvára innan félagsins.
- Kvenfélagasamband Íslands – 1,5 milljónir króna
Vitundarvakning Kvenfélagasambands Íslands gegn einmanaleika í tilefni af viku einmanaleikans.
- Samtökin Framfarahugur – 1 milljón króna
Verkefni til að efla félagsleg tengsl, samkennd og bætta geðheilsu meðal ungmenna úr minnihlutahópum.