Hoppa yfir valmynd
22. nóvember 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Stuðningur við markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað ferðamanna

Pétur Óskarsson framkvæmdarstjóri Íslandsstofu og Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra við undirritun í Grósku. - mynd

Menningar- og viðskiptaráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, undirritaði í gær samning við Íslandsstofu um markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað ferðamanna. Um er að ræða alþjóðlega neytendamarkaðssetningu fyrir íslenska ferðaþjónustu til að fylgja eftir áherslum í Ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun hennar til 2030, sem samþykkt var á Alþingi í júní 2024. Samningurinn er einnig hluti af aðgerðum stjórnvalda til að verja gjaldeyristekjur frá ferðaþjónustu.

Markaðssetning samkvæmt samningnum verður starfrækt á völdum erlendum mörkuðum. Markmið þess er að viðhalda og koma á framfæri ímynd og orðspori Íslands sem leiðandi í sjálfbærri þróun og sem eftirsóknarverður áfangastaður ferðamanna, styrkja ímynd Íslands sem áfangastaðar, viðhalda samkeppnisstöðu íslenskrar ferðaþjónustu og miðla réttum upplýsingum um stöðu mála ef upp koma náttúruhamfarir eða önnur áföll.

Samningurinn gildir til lokaárs 2025 og felur í sér samtals 200 m.kr. framlag frá menningar- og viðskiptaráðuneytinu. Um er að ræða beina útfærslu á aðgerð B.2 í framangreindri aðgerðaáætlun Ferðamálastefnu („B.2. Markviss og viðvarandi markaðssetning á Íslandi sem áfangastað ferðamanna.“).

„Ferðaþjónusta er okkar stærsta atvinnugrein og þar verða til mestu gjaldeyrisverðmætin. Við getum hins vegar ekki tekið þeirri stöðu sem sjálfsögðum hlut og það er afar brýnt að við, eins og aðrar þjóðir, höldum úti markvissri og viðvarandi markaðssetningu á Íslandi til að koma á framfæri ímynd Íslands sem leiðandi í sjálfbærri þróun og sem eftirsóknarverðs áfangastaðar ferðamanna. Ekki er síður mikilvægt að vera undir það búin að miðla réttum upplýsingum þegar áföll dynja á okkur. Með því höldum við áfram að byggja upp markaði, treysta stöðu okkar og stuðla að sjálfbærri og öflugri ferðaþjónustu til lengri tíma,“  segir menningar- og viðskiptaráðherra.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta