Hoppa yfir valmynd
24. nóvember 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Þakkarorða íslenskrar tónlistar: miðar aðgengilegir á morgun kl. 12:00

Þakkarorða íslenskrar tónlistar 1. desember í Hörpu:

Magnúsi Eiríkssyni fagnað og þjóðinni boðið

Þakkarorða íslenskrar tónlistar verður veitt í fyrsta sinn í Hörpu með hátíðlegum og hljómfögrum hætti þann 1. desember á Degi íslenskrar tónlistar. Verðlaunin eru heiðursverðlaun nýstofnaðs Tónlistarráðs  og er þeim ætlað að heiðra starf og sköpun þess listamanns er fyrir valinu verður og um leið bjóða landsmönnum upp á einstaka tónlistarveislu.

Tónlistarráð starfar samkvæmt tónlistarlögum er samþykkt voru 10. maí á Alþingi en hlutverk ráðsins er meðal annars að vera stjórnvöldum og Tónlistarmiðstöð til ráðgjafar um málefni tónlistar og taka þátt í stefnumótun Tónlistarmiðstöðvar og eflingu íslensks tónlistarlífs. Menningar- og viðskiptaráðherra skipar Tónlistarráð til þriggja ára en í því sitja m.a. fulltrúar Félags tónskálda og textahöfunda, Félags hljómplötuframleiðenda, Félags íslenskra hljómlistarmanna, STEFs, RÚV, Tónlistardeildar LHÍ, Tónlistarborgarinnar Reykjavík, auk 10 annarra hagaðila. 

Boðsmiðar aðgengilegir á mánudag

Eitt fyrsta verkefni Tónlistarráðs er tilnefning heiðurshafa Þakkarorðu íslenskrar tónlistarsem að þessu sinni hlotnast tónskáldinu og  textahöfundinum ástsæla, Magnúsi Eiríkssyni. Af því tilefni verður efnt til glæsilegra heiðurstónleika í Eldborg í Hörpu kl. 20:00 þann 1.desember þar sem bestu lög  Magnúsar verða flutt af mörgum af fremstu flytjendum landsins. Þeirra á meðal eru Bríet, Ragga Gísla, Pálmi Gunnarsson, Ellen Kristjáns, Mugison, KK og Valdimar Guðmundsson, auk einvala liðs hljóðfæraleikara undir stjórn tónlistarstjórans Eyþórs Gunnarssonar. Kynnar verða Jón Jónsson og Salka Sól.

Landsmönnum gefst kostur á að sækja tónleikana með því að sækja boðsmiða á harpa.is/takk frá kl. 12:00 mánudaginn 25.nóvember og gildir þar hið fornkveðna: Fyrstur kemur, fyrstur fær. Tónleikarnir verða einnig teknir upp og sendir út sem hluti af hátíðardagskrá RÚV milli jóla og nýárs í von um að sem flestum gefist kostur á að upplifa þessa einstöku tónlistarveislu.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta