Ytri rýni vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga
Dómsmálaráðherra hefur ákveðið, samkvæmt lögum um almannavarnir, að skipa þriggja manna starfshóp sérfræðinga sem mun framkvæma ytri rýni á aðgerðum eða aðgerðarleysi viðbragðsaðila tengt jarðhræringunum á Reykjanesskaga. Nefndin verður skipuð Hafsteini Dan Kristjánssyni, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, Kjartani Þorkelssyni, fyrrum lögreglustjóra Suðurlands og Sóleyju Kaldal, áhættustýringar- og öryggisverkfræðingi. Hafsteinn Dan Kristjánsson verður formaður nefndarinnar. Öll búa þau yfir ólíkri sérfræðiþekkingu sem nýtist til verkefnisins.
Dómsmálaráðherra hefur lagt áherslu á nauðsyn þess að framkvæma ytri rýni í samræmi við ákvæði almannavarnarlaga. Þrátt fyrir að ytri rýni eigi almennt að fara fram eftir að almannavarnastigi hefur verið aflétt þykir rétt vegna þeirrar langvarandi atburðarásar sem nú á sér stað á Reykjanesi, að fram fari rýni á tímanum frá því óvissustigi almannavarna var lýst yfir, 25. október 2023, og til skipunardags nefndarinnar.
Margvíslegar áskoranir
Vegna yfirstandandi jarðhræringa á Reykjanesskaga hefur viðbragðskerfi almannavarna tekist mánuðum saman á við margvíslegar áskoranir sem ekki sér fyrir endann á. Í þessu hættuástandi hafa lykilaðilar þurft að taka erfiðar og stundum afdrifaríkar ákvarðanir hratt og örugglega. Slíkar ákvarðanir kunna að hafa í för með sér margvísleg áhrif á ólíka hagsmuni. Afleiðingar slíkra ákvarðana geta til að mynda haft áhrif á fjárútgjöld úr ríkissjóði, áhrif á réttindi hins almenna borgara til búsetu og atvinnu, áhrif á réttindi atvinnurekenda til atvinnustarfsemi og sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga.
Innri rýni
Lög um almannavarnir mæla fyrir um þrepaskipta rýni á aðgerðum viðbragðsaðila. Samkvæmt því fyrirkomulagi tekur eðli og umfang rýni mið af alvarleika þess ástands sem rýna skal. Í fyrsta lagi er ávallt tryggt að fram fari innri rýni á viðbrögðum í almannavarnaástandi, í öðru lagi fer ytri rýni fram þegar stjórn samhæfingar og stjórnstöðvar telur það nauðsynlegt og í þriðja lagi getur ráðherra óskað eftir skýrslugjöf og ytri rýni.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra framkvæmdi innri rýni á aðgerðum viðbragðsaðila tengt jarðhræringunum á Reykjanesi. Óháður sérfræðingur annaðist framkvæmd innri rýninnar í samvinnu við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.