Hoppa yfir valmynd
2. desember 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

„Takk Maggi og takk íslensk tónlist!“

Magnús Eiríksson hlaut Þakkarorðu Íslenskrar Tónlistar í gærkvöldi. - myndMummi Lú

Þakkarorða íslenskrar tónlistar var afhent í gær á Degi íslenskrar tónlistar á sérstökum hátíðartónleikum til heiðurs tónlistarmanninum Magnúsi Eiríkssyni. Tónleikarnir fóru fram fyrir fullum Eldborgarsal í Hörpu og var þjóðinni boðið að sækja sér miða sem ruku út á nokkrum mínútum. Tónleikarnir voru einnig teknir upp og verða sýndir á RÚV 26. desember.

Einstök stemming myndaðist á tónleikunum þar sem gestir risu úr sæti og fögnuðu Magnúsi og íslensku tónlistarlífi. Magnús þakkaði sjálfur fyrir allt það góða tónlistarfólk sem hefur fylgt honum á ferlinum, eins og hann orðaði það sjálfur: „og komið mér í stúdíó“ og vísaði þar til þeirra fjölmörgu vina sinna sem heiðruðu hann í gærkvöldi með flutning á lögum hans. Meðal þeirra var KK en þeir félagar hafa spilað saman í 28 ár en auk hans komu fram Ragga Gísla, Pálmi Gunnarsson, Ellen Kristjánsdóttir og dætur hennar Elísabet, Sigríður og Elín Eyþórsdætur, Mugison, Bríet, Valdimar, Salka Sól og Jón Jónsson. Einvala lið hljóðfæraleikara undir styrkri stjórn Eyþórs Gunnarssonar fór á kostum en þar á meðal voru synir Magnúsar þeir Stefán Magnússon gítarleikari og Stefán Stefánsson trommari.

 

Hluti íslenskrar þjóðarsálar

Saga tónlistarmannsins Magnúsar Eiríkssonar spannar marga áratugi og ótrúlegan fjölda hugverka og hljóðrita. Einlægni er Magnúsi Eiríkssyni eðlislæg auk þess hve lagræn og sönghæf lögin hafa verið frá fyrstu tíð. Textarnir hitta jafnan beint í mark og falla svo vel að laglínunum að úr verða fullkomnar samfellur. Lög Magnúsar eru órjúfanlegur hluti íslenskrar þjóðarsálar og menningararfs. Ferill Magnúsar Eiríkssonar spannar allt frá árdögum blúsvakningarinnar á Íslandi og vindur fram í gegnum sögu hljómsveitanna Blús kompanís, Pónik, Skuggasveina, Lísu í Undralandi, Brunaliðsins og svo Mannakorna, auk fjölmargra annarra verkefna.

„Maggi Eiríks, eins og þjóðin þekkir hann, er ekki bara iðinn og fær tónlistarmaður heldur hefur fjölbreytni hans gefið íslensku þjóðinni marga dýrgripi og fyllt fjöldann allan af listafólki innblæstri. Laga- og textasmiðnum, gítarleikaranum og söngvaranum Magga Eiríks eru færðar þakkir frá okkur öllum og um leið vil ég þakka öllu því stórbrotna tónlistarfólki sem flutti lög Magnúsar í gærkvöldi. Ég fyllist enn á ný lotningu yfir þeim fjársjóði sem listafólkið okkar er. Takk Maggi og takk íslensk tónlist!“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.

 

Árlegur viðburður

Tónlistarráð var skipað í haust samkvæmt nýjum tónlistarlögum og var ráðinu meðal annars falið að móta nýja hugmynd að sérstökum heiðursverðlaunum til þess að fagna sköpunarkrafti og ævistarfi íslensks tónlistarmanns eða tónlistarhóps og þakka með þeim hætti fyrir framlag viðkomandi til íslensks tónlistarlífs.

„Það þarf ekki að koma neinum á óvart að nafn Magnúsar Eiríkssonar hafi þegar á fyrstu metrum undirbúnings ítrekað borið á góma. Þegar horft var til bæði lagasmíða, textasmíða, lifandi flutnings og upptökustjórnar hljóðritunarferlisins, reyndist Tónlistarráðið einróma í þeirri niðurstöðu að Magnús Eiríksson skyldi fyrstur hljóta hin nýju heiðursverðlaun,“ segir Jakob Frímann Magnússon formaður Tónlistarráðs.

Tónlistarráð sammæltist um að hin nýju verðlaun skyldu nefnd Þakkarorða íslenskrar tónlistar og verða afhent árlega á Degi íslenskrar tónlistar sem jafnan ber upp á fullveldisdaginn 1. desember. Þakkarorða íslenskrar tónlistar er samstarfsverkefni Tónlistarráðs, menningar- og viðskiptaráðuneytisins, Tónlistarmiðstöðvar, Hörpu og RÚV.

  
  • Þakkarorða er hönnuð og handsmíðuð af Erling Jóhannssyni gullsmiði og skartgripahönnuði, samsett úr blómstrandi tákni tónlistarinnar og heiðurssveig lárviðarins, sem hefur frá tímum forngrikkja verið guðlegt tákn veittur þeim sem skarað hafa fram úr í skáldskap og tónlist. - mynd
  • Magnús Eiríksson, Lilja Dögg Alfreðsdóttir og eiginmaður hennar Magnús Óskar Hafsteinsson. - mynd
  • Pálmi Gunnarsson og Lilja Dögg Alfreðsdóttir  - mynd
  • „Takk Maggi og takk íslensk tónlist!“ - mynd úr myndasafni númer 4
  • Systurnar Sigríður, Elísabet og Elín Eyþórsdætur. - mynd
  • Kynnar kvöldsins voru Jón Jónsson og Salka Sól.  - mynd
  • Ellen Kristjáns og Pálmi Gunnarsson. - mynd
  • „Takk Maggi og takk íslensk tónlist!“ - mynd úr myndasafni númer 8
  • Lilja Dögg Alfreðsdóttir og Bríet Ísis Elfar. - mynd
  • „Takk Maggi og takk íslensk tónlist!“ - mynd úr myndasafni númer 10
  • „Takk Maggi og takk íslensk tónlist!“ - mynd úr myndasafni númer 11
  • „Takk Maggi og takk íslensk tónlist!“ - mynd úr myndasafni númer 12
  • Magnús Eiríksson ásamt sonum sínum. - mynd
  • Forseti Íslands Halla Tómasdóttir og Valdimar. - mynd
  • „Takk Maggi og takk íslensk tónlist!“ - mynd úr myndasafni númer 15
  • „Takk Maggi og takk íslensk tónlist!“ - mynd úr myndasafni númer 16
  • „Takk Maggi og takk íslensk tónlist!“ - mynd úr myndasafni númer 17
  • „Takk Maggi og takk íslensk tónlist!“ - mynd úr myndasafni númer 18

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta