Vernd vegna fjöldaflótta lengd í fimm ár í stað þriggja að hámarki
Alþingi hefur samþykkt frumvarp dómsmálaráðherra um breytingu á 44. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, sem felst í því að hámarkstími dvalarleyfa, sem veitt eru á grundvelli sameiginlegrar verndar í kjölfar fjöldaflótta, verði lengdur úr þremur árum í fimm. Í 4. mgr. 44. gr. laganna er kveðið á um að umsókn útlendings sem fellur undir 2. mgr. um alþjóðlega vernd megi leggja til hliðar í allt að þrjú ár frá því að umsækjandi fékk fyrst leyfi. Breytt ákvæði felur í sér að stjórnvöldum verði heimilt að leggja umsókn um vernd til hliðar í allt að fimm ár eða í tvö ár til viðbótar. Breytingin á við um þá sem þegar hafa fengið sameiginlega vernd á grundvelli fjöldaflótta sem og þá sem kunna að fá slíka vernd í framtíðinni.
Fjöldaflótti frá Úkraínu
Innrásarstríð Rússlands í Úkraínu leiddi til að umsóknum úkraínskra ríkisborgara um alþjóðlega vernd á Íslandi og í Evrópu fjölgaði verulega. Í kjölfarið beittu íslensk stjórnvöld, samhliða aðildarríkjum Evrópusambandsins og samstarfsríkjum Schengen, Noregi, Sviss og Liechtenstein, heimild ráðherra skv. 44. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, sem fjallar um sameiginlega vernd vegna fjöldaflótta, í eitt ár. Þeir einstaklingar sem falla undir þetta ákvæði fá útgefið dvalarleyfi skv. 74. gr. útlendingalaga. Hér er einkum um að ræða mál úkraínskra ríkisborgara, sem voru búsettir í Úkraínu fyrir innrásina, og fjölskyldna þeirra.
Stríðið í Úkraínu hefur nú staðið yfir í rúm tvö ár og sér ekki fyrir endann á átökum í landinu. Frá því stríðsátökin brutust út hefur fjöldi umsókna um vernd frá úkraínskum ríkisborgurum verið umtalsverður hér á landi. Árið 2022 fengu 2.315 einstaklingar sameiginlega vernd á grundvelli 44. gr. útlendingalaga og 1.556 á árinu 2023. Vegna þessa tók dómsmálaráðherra ákvörðun 1. febrúar 2023 um að framlengja gildistíma ákvörðunar ráðherra samkvæmt heimild 44. gr. laga um útlendinga um eitt ár, til og með 3. mars 2024. Hinn 22. febrúar 2024 ákvað ráðherra að framlengja gildistímann um ár til viðbótar, eða til og með 2. mars 2025.
Með þessari breytingu geta Úkraínumenn hér á landi því dvalist hér a.m.k. til mars árið 2027 án þess að taka þurfi umsóknir þeirra til skoðunar í einstaklingsbundinni efnismeðferð.
Sameiginleg vernd vegna fjöldaflótta
Tilgangur verndarkerfisins er að veita einstaklingum tímabundna vernd gegn ofsóknum eða stríði. Sameiginlegri vernd vegna fjöldaflótta er ætlað sem viðbragð við tímabundnum aðstæðum þar sem hópur einstaklinga flýr afmarkað landsvæði og þarf á vernd að halda. Sameiginleg vernd er undantekning frá þeirri meginreglu að umsókn um alþjóðlega vernd skuli hljóta einstaklingsbundna efnismeðferð hjá stjórnvöldum. Mál vegna sameiginlegrar verndar eru frábrugðin að því leyti að slakað er á sönnunarkröfum og rannsóknarskyldu stjórnvalda. Fjöldi umsækjenda um alþjóðlega vernd í slíkum aðstæðum getur verið ófyrirsjáanlegur sem kallar á sveigjanlegar reglur og einfalt umsóknarferli.