Hoppa yfir valmynd
4. desember 2024 Innviðaráðuneytið

Stuðningur við Neytendasamtökin um Leigjendaaðstoðina endurnýjaður

Ingilín Kristmannsdóttir, ráðuneytisstjóri innviðaráðuneytisins, og Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, með samninginn. - mynd

Neytendasamtökin munu áfram veita leigjendum og leigusölum ráðgjöf og þjónustu með stuðningi stjórnvalda en samningur þess efnis við innviðaráðuneytið var endurnýjaður í dag. Það voru þau Ingilín Kristmannsdóttir, ráðuneytisstjóri innviðaráðuneytisins, og Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, sem undirrituðu samninginn.

Leigjendaaðstoð Neytendasamtakanna hefur verið starfrækt frá árinu 2011. Þjónustan felst einkum í að veita leigjendum og leigusölum íbúðarhúsnæðis upplýsingar um rétt þeirra og skyldur samkvæmt húsaleigulögum og veita leigjendum lögfræðiráðgjöf þegar upp kemur ágreiningur vegna leigusamninga um íbúðarhúsnæði.

Stuðningur ráðuneytisins nemur 7,5 milljónum króna fyrir árið 2025. Samtökin fá einnig sérstakan styrk til að þýða vef Leigjendaaðstoðarinnar á fleiri tungumál en vefurinn er nú þegar aðgengilegur á íslensku, ensku og pólsku.

Þjónusta Leigjendaaðstoðarinnar er fólki að kostnaðarlausu. Reglulegir símatímar eru á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 12:30-15:00. Þá eru margvíslegar upplýsingar um réttindi og skyldur leigjenda og leigusala á vef Leigjendaaðstoðarinnar – leigjendur.is. Þar má einnig skoða algengar spurningar og svör og senda fyrirspurnir rafrænt.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta