Hoppa yfir valmynd
5. desember 2024 Innviðaráðuneytið

Ný flugstöð og flughlað vígð á Akureyrarflugvelli

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra við vígslu nýrrar flugstöðvar og flughlaðs á Akureyrarflugvelli. - mynd

Ný flugstöð og nýtt flughlað voru vígð við hátíðlega athöfn og formlega tekin í notkun á Akureyrarflugvelli í dag. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra flutti ávarp við athöfnina en hann tók fyrstu skóflustungu að viðbyggingu flugstöðvarinnar sumarið 2021. Fjölmenni var við vígsluna sem bar upp á 70 ára afmælisdag Akureyrarflugvallar, þ.á m. fulltrúar Akureyrarbæjar, Isavia og framkvæmdaaðila.

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra: „Hin nýju og glæsilegu mannvirki á Akureyrarflugvelli, flughlað og stækkuð flugstöð, eru mikið framfaraspor fyrir flugsamgöngur á Norðurlandi. Þau styrkja mikilvægt hlutverk Akureyrarflugvallar fyrir svæðið í kring og landið allt, fyrir tengingar innanlands, sem gátt inn í landið og sem varaflugvöllur fyrir millilandaflug. Öflugur flugvöllur á Akureyri færir Norðurlandi mikinn ábata og ávinning þegar í stað og styður við þá stefnu að dreifa ferðafólk um allt land. Mannvirkin munu standa sem skýrt merki um sýnilegan árangur síðustu ára.“

Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla: „Það er ekki tilviljun að þessi dagur varð fyrir valinu til að taka þessa nýju viðbót í notkun. Fyrir sjö áratugum síðan upp á dag var Akureyrarflugvöllur vígður við hátíðlega athöfn og dagurinn því táknrænn í sögu vallarins." Sigrún upplýsti að ný flugstöð geti annað hálfri milljón farþega en farþegar um Akureyrarflugvöll eru um 200 þúsund árlega. Þar af eru millilandafarþegar um 16%.“

Byggt í þremur áföngum

Ný og endurbætt flugstöð var unnin í þremur áföngum. Í þeim fyrsta var nýrri viðbyggingu upp á 1.100 fermetra bætt við þar sem er aðstaða fyrir lögreglu, toll, fríhafnarverslun og veitingastað. Í öðrum áfanga verksins var núverandi komusvæði flugstöðvarinnar endurbyggt en þar er nýtt innritunarsvæði. Í þriðja áfanga var núverandi innritunarsvæði og skrifstofuhluti flugstöðvarbyggingarinnar endurbyggt.

Nýja flughlaðið er 33 þúsund fermetrar að stærð og með skilgreind tvö þotusvæði. Allt í allt er hægt að taka á móti 12 til 14 flugvélum á Akureyrarflugvelli í stað 4 til 5 véla.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta