Úthlutun listamannalauna 2025
Úthlutunarnefndir Launasjóða listamanna hafa lokið störfum vegna úthlutunar listamannalauna árið 2025.
Til úthlutunar voru 1720 mánaðarlaun úr átta launasjóðum: hönnuða, myndlistarmanna, rithöfunda, sviðslistafólks, tónlistarflytjenda, tónskálda, kvikmyndahöfunda og Vegsemd fyrir listamenn 67 ára og eldri. Tveir síðastnefndu sjóðirnir bættust við með breytingum á lögum um listamannalauna sl. sumar.
· Fjöldi umsækjenda var 1.339 þar af 1.223 einstaklingar og 116 sviðslistahópar.
· Sótt var um 11.988 mánuði þar af 1.611 mánuði innan sviðslistahópa.
· Úthlutun fær 251 listamaður. Við hana bætist úthlutun til þátttakenda í sviðslistahópum úr launasjóði sviðslistafólks sem tengist Sviðslistasjóði. Úthlutun úr Sviðslistasjóði verður tilkynnt á nýju ári.
Vegsemd er nýr sjóður fyrir listamenn 67 ára og eldri, til úthlutunar voru 60 mánaðarlaun fyrir sjö fagsjóði. Stjórn listamannalauna ákveður skiptingu mánaða á milli launasjóða. Úthlutun dreifðist á alla sjóði. Átta listamenn úr öllum launasjóðum fá samtals 66 mánuði úr Vegsemd þar sem 6 mánuðir voru færðir frá fagsjóðum yfir í Vegsemd samkvæmt heimild í lögum. Úthlutun úr Vegsemd hækkar í skrefum og nær 180 mánuðum árið 2028 (sjá lagafrumvarp). Í heildina fá 20 listamenn sem eru 67 ára og eldri úthlutun, samtals 159 mánuði.
Í frumvarpi um breytingar á lögum um listamannalaun stóð til að stofna
launasjóðinn Vöxt fyrir ungt listafólk, 35 ára og yngri. Í meðförum þingsins
féll Vöxtur út en á móti kom aukin áhersla á nýliðun (í meirihlutaáliti
allsherjar- og menntamála nefndar). 48 listamenn yngri en 35 ára fá samtals
221 mánuð eða um 13% af mánuðum fagsjóða. Af þeim teljast 30 vera nýliðar.
Nýliðar teljast listamenn sem aldrei hafa fengið úthlutun eða hafa fengið allt
að þriggja mánaða úthlutun einu sinni. Áhersla stjórnar var að nýliðun árið
2025 yrði að lágmarki 7% af úthlutuðum mánuðum og gekk það eftir í öllum sjóðum.
Nýliðun er breytileg milli sjóða en er að jafnaði um 14%. Alls teljast 68 launþegar
til nýliða og fá 286 mánuði.
Listamannalaun árið 2025 verða 560.000 kr. á mánuði. Listamannalaun sem úthlutað var fyrir árið 2024 eru 538.000 kr. á mánuði. Um verktakagreiðslur er að ræða.
Eftirtöldum listamönnum voru veitt starfslaun*:
Launasjóður hönnuða – 56 mánuðir
8 mánuðir
Birta Fróðadóttir
6 mánuðir
Arnar Már Jónsson
Auður Gná Ingvarsdóttir
Erla Sólveig Óskarsdóttir
Sæunn Huld Þórðardóttir
5 mánuðir
Antonía Bergþórsdóttir
Sigmundur Páll Freysteinsson
Signý Þórhallsdóttir
3 mánuðir
Guðmundur Magnússon
Íris Indriðadóttir
Signý Jónsdóttir
Launasjóður myndlistarmanna – 458 mánuðir
24 mánuðir (12 skuldbundnir af 2026 úthlutun)
Ásta Fanney Sigurðardóttir
12 mánuðir
Andreas Martin Brunner
Anna Júlía Friðbjörnsdóttir
Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar
Kristín G. Gunnlaugsdóttir
Sigurður Guðjónsson
Una Björg Magnúsdóttir
Þorgerður Ólafsdóttir
Þuríður Rúrí Fannberg
11 mánuðir
Hrafnkell Sigurðsson
9 mánuðir
Amanda Katia Riffo
Bryndís H. Snæbjörnsdóttir
Finnbogi Pétursson
Guðný Rósa Ingimarsdóttir
Gústav Geir Bollason
Helgi Þorgils Friðjónsson
Margrét H. Blöndal
Ólafur Sveinn Gíslason
Rósa Gísladóttir
6 mánuðir
Anna Helen Katarina Hallin
Anna Rún Tryggvadóttir
Arna Óttarsdóttir
Arnar Ásgeirsson
Arngunnur Ýr Gylfadóttir
Birgir Snæbjörn Birgisson
Boaz Yosef Friedman
Claudia Hausfeld
Deepa Radhakrishna Iyengar
Einar Garibaldi Eiríksson
Eirún Sigurðardóttir
Elín Hansdóttir
Erling Þór Valsson
Eygló Harðardóttir
Guðmundur Thoroddsen
Gunnar Jónsson
Haraldur Jónsson
Helgi Eyjólfsson
Hildigunnur Birgisdóttir
Hildur Elísa Jónsdóttir
Jóní Jónsdóttir
Katrín Bára Elvarsdóttir
Katrín Sigurðardóttir
Kolbeinn Hugi Höskuldsson
Kristín Þorláksdóttir
Linus Lohmann
Magnús Óskar Helgason
Magnús Tumi Magnússon
María Sjöfn Dupuis Laufeyjardóttir
Olga Soffía Bergmann
Ólöf Nordal
Pétur Thomsen
Ráðhildur Sigrún Ingadóttir
Sara Björnsdóttir
Selma Hreggviðsdóttir
Sigríður Björg Sigurðardóttir
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson
Sigurður Atli Sigurðsson
Sólveig Aðalsteinsdóttir
Unnar Örn Jónasson Auðarson
Þóra Sigurðardóttir
Launasjóður rithöfunda – 566 mánuðir
12 mánuðir
Eiríkur Örn Norðdahl
Gerður Kristný Guðjónsdóttir
Gunnar Helgason
Hallgrímur Helgason
Kristín Ómarsdóttir
Pétur Gunnarsson
Ragnar Helgi Ólafsson
Ragnheiður Sigurðardóttir
Sigríður Hagalín Björnsdóttir
Sigrún Eldjárn
Steinar Bragi Guðmundsson
Yrsa Þöll Gylfadóttir
Þórdís Gísladóttir
Þórdís Helgadóttir
9 mánuðir
Auður Jónsdóttir
Áslaug Jónsdóttir
Bergrún Íris Sævarsdóttir
Bergþóra Snæbjörnsdóttir
Bragi Ólafsson
Brynja Hjálmsdóttir
Einar Már Guðmundsson
Fríða Jóhanna Ísberg
Guðrún Eva Mínervudóttir
Gunnar Theodór Eggertsson
Gyrðir Elíasson
Hildur Knútsdóttir
Jón Kalman Stefánsson
Kristín Eiríksdóttir
Kristín Helga Gunnarsdóttir
Margrét Vilborg Tryggvadóttir
Ófeigur Sigurðsson
Pedro Gunnlaugur Garcia
Steinunn Sigurðardóttir
Ævar Þór Benediktsson
6 mánuðir
Alexander Dan Vilhjálmsson
Andri Snær Magnason
Arndís Þórarinsdóttir
Benný Sif Ísleifsdóttir
Bergsveinn Birgisson
Bragi Páll Sigurðarson
Brynjólfur Þorsteinsson
Einar Kárason
Emil Hjörvar Petersen
Eva Rún Snorradóttir
Friðgeir Einarsson
Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson
Harpa Rún Kristjánsdóttir
Haukur Már Helgason
Hermann Stefánsson
Mazen Maarouf
Natalia Stolyarova
Ragnheiður Eyjólfsdóttir
Ragnheiður Harpa Leifsdóttir
Rán Flygenring
Sif Sigmarsdóttir
Sigrún Pálsdóttir
Sigurbjörg Þrastardóttir
Soffía Bjarnadóttir
Sunna Dís Másdóttir
Sölvi Björn Sigurðsson
Vilborg Davíðsdóttir
Þórunn Elín Valdimarsdóttir
3 mánuðir
Anna Hafþórsdóttir
Birta Ósmann Þórhallsdóttir
Einar Lövdahl Gunnlaugsson
Elías Rúni Þorsteins
Fanney Hrund Hilmarsdóttir
Gunnar Þorri Pétursson
Ingólfur Eiríksson
Joachim Beat Schmidt
Kristján Þórður Hrafnsson
Linda Dögg Ólafsdóttir
Malgorzata Nowak
Margrét Lóa Jónsdóttir
María Elísabet Bragadóttir
Tómas Ævar Ólafsson
Valgerður Ólafsdóttir
Þóra Hjörleifsdóttir
2 mánuðir
Elfar Logi Hannesson
Launasjóður sviðslistafólks – 200 mánuðir
Einstaklingar - 98 mánuðir.
12 mánuðir
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
Hrafnhildur H. Guðmundsdóttir
Steinunn Hildigunnur Knúts Önnudóttir
Tyrfingur Tyrfingsson
9 mánuðir
Margrét Bjarnadóttir
6 mánuðir
Birnir Jón Sigurðsson
Bjarni Jónsson
Jóhann Kristófer Stefánsson
4 mánuðir
Adolf Smári Unnarsson
3 mánuðir
Ásrún Magnúsdóttir
Felix Urbina Alejandre
Kolfinna Nikulásdóttir
Margrét Sara Guðjónsdóttir
Rósa Ómarsdóttir
2 mánuðir
Halla Þórðardóttir
Saga Kjerúlf Sigurðardóttir
Sviðslistahópar – 102 mánuðir.
Verður uppfært eftir úthlutun Sviðslistasjóðs í janúar 2025.
Kemur listi yfir verkefni, og úthlutaðan mánaðarfjölda til þátttakenda.
Launasjóður
tónlistarflytjenda – 186 mánuðir
Umsóknir í launasjóð tónlistarflytjenda tengdust nokkuð skilgreindum samstarfsverkefnum tónlistarflytjenda til afmarkaðs tíma. Úthlutun ber þess merki að töluverður fjöldi úthlutana eru til skemmri tíma en 6 mánaða. Einnig eru tilvik þar sem þriggja mánaða úthlutanir tengjast því að tónlistarflytjandi er einnig að fá úthlutun úr launasjóði tónskálda.
12 mánuðir
Hildigunnur Einarsdóttir
9 mánuðir
Björk Níelsdóttir
Ómar Guðjónsson
Óskar Guðjónsson
Ragnheiður Gröndal
6 mánuðir
Árný Margrét Sævarsdóttir
Ásgeir Óskarsson
Bjarni Thor Kristinsson
Björg Brjánsdóttir
Guðrún Dalía Salómonsdóttir
Gunnsteinn Ólafsson
Magnús Trygvason Eliassen
Margrét Hrafnsdóttir
Sigrún Harðardóttir
Stefan Sand
Svanur Davíð Vilbergsson
Tómas Jónsson
Þóra Margrét Sveinsdóttir
Þórdís Gerður Jónsdóttir
3 mánuðir
Arnar Guðjónsson
Ásgeir Aðalsteinsson
Ásgeir Jón Ásgeirsson
Áslákur Ingvarsson
Benedikt Kristjánsson
Eggert Reginn Kjartansson
Eyjólfur Eyjólfsson
Jóna G. Kolbrúnardóttir
Kjartan Valdemarsson
Kristín Sveinsdóttir
Sara Mjöll Magnúsdóttir
Sigríður Thorlacius
Skúli Sverrisson
Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir
Svavar Knútur Kristinsson
Una Sveinbjarnardóttir
Unnsteinn Árnason
Valdimar Guðmundsson
Launasjóður tónskálda – 200 mánuðir
Í fimm tilvikum þar sem úthlutað er til 3 mánaða er tónskáld einnig að fá úthlutun úr launasjóði tónlistarflytjenda. Önnur fimm tilvik tengjast samstarfsverkefnum á milli tónskálda.
12 mánuðir
Bára Gísladóttir
Guðmundur Steinn Gunnarsson
Viktor Orri Árnason
9 mánuðir
Daníel Bjarnason
Gyða Valtýsdóttir
Hlynur Aðils Vilmarsson
8 mánuðir
Þuríður Jónsdóttir
6 mánuðir
Áki Ásgeirsson
Áskell Másson
Bergrún Snæbjörnsdóttir
Diana Burkot
Eiríkur Orri Ólafsson
Guðrún Ýr Eyfj. Jóhannesdóttir
Halldór Eldjárn
Haukur Tómasson
Mikael Nils Lind
Tómas Ragnar Einarsson
Tumi Árnason
Veronique Jacques
Þorsteinn Hauksson
Örnólfur Eldon Þórsson
3 mánuðir
Arnar Guðjónsson
Birnir Sigurðarson
Bjargmundur Ingi Kjartansson
Eva Jóhannsdóttir
Gunnsteinn Ólafsson
Indriði Arnar Ingólfsson
Jelena Ciric
Kjartan Valdemarsson
Laufey Soffía Þórsdóttir
Margrét Rósa Dórud. Harrysdóttir
Ragnheiður Gröndal
Sara Mjöll Magnúsdóttir
Sólveig M. Kristjánsdóttir
Þóranna Dögg Björnsdóttir
Ægir Sindri Bjarnason
Launasjóður kvikmyndahöfunda – 66 mánuðir
12 mánuðir
Ísold Uggadóttir
6 mánuðir
Ása Helga Hjörleifsdóttir
Hilmar Oddsson
Hlynur Pálmason
María Sólrún Sigurðardóttir
Óskar Þór Axelsson
Valdimar Jóhannsson
Yrsa Þurý Roca Fannberg
3 mánuðir
Haukur Björgvinsson
Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Þóra Hilmarsdóttir
Þórey Mjallhvít H. Ómarsdóttir
Skipting umsókna milli sjóða 2025 var eftirfarandi:
Launasjóður hönnuða: 56 mánuðir eru til úthlutunar, þar af 6 mánuðir úr Vegsemd. 67 umsóknir bárust og sótt var um 520 mánuði.
· Starfslaun fá 11 hönnuðir, 8 konur og 3 karlar .
Launasjóður myndlistarmanna: 458 mánuðir eru til úthlutunar, þar af 11 mánuðir úr Vegsemd og 12 mánuðir eru skuldbundnir af 2026 úthlutun. 329 umsóknir bárust og sótt var um 2.961 mánuð.
· Starfslaun fá 60 myndlistarmenn, 36 konur og 24 karlar.
Launasjóður rithöfunda: 566 mánuðir eru til úthlutunar, þar af 11 mánuðir úr Vegsemd. 237 umsóknir bárust og sótt var um 2.349 mánuði.
· Starfslaun fá 79 rithöfundar, 44 konur, 34 karlar og 1 kynsegin.
Launasjóður sviðslistafólks: 200 mánuðir eru til úthlutunar, þar af 10 mánuðir úr Vegsemd. Sótt var um 1.971 mánuð (1.611 mánuði fyrir hópa og 360 mánuði fyrir einstaklinga). Alls bárust 68 einstaklingsumsóknir og 116 umsóknir frá sviðslistahópum með 480 nafngreindum þátttakendum innanborðs. Sótt var um listamannlaun fyrir 413 listamenn innan hópanna. Margir þátttakendur tengjast fleiri en einni umsókn.
· Starfslaun fá 16 sviðslistamenn í 98 mánuði, 10 konur og 6 karlar.
· Þátttakendur í sviðslistahópum fá 102 mánuði. Úthlutun til hópa tengist úthlutun Sviðslistasjóðs sem tilkynnt verður í janúar 2025.
Launasjóður tónlistarflytjenda: 186 mánuðir eru til úthlutunar, þar af 6 mánuðir úr Vegsemd. 201 umsókn barst og sótt var um 1.453 mánuði.
· Starfslaun fá 37 tónlistarmenn, 21 kona og 16 karlar
Launasjóður tónskálda: 200 mánuðir eru til úthlutunar, þar af 10 mánuðir úr Vegsemd. 197 umsóknir bárust og sótt var um 1.741 mánuð.
· Starfslaun fá 36 tónskáld, 15 konur og 21 karl.
Launasjóður kvikmyndahöfunda: 66 mánuðir eru til úthlutunar, þar af 6 mánuðir úr Vegsemd. 124 umsóknir bárust og sótt var um 993 mánuði.
· Starfslaun fá 12 kvikmyndahöfundar, 7 konur og 5 karlar.
Úthlutunarnefndir 2025 voru skipaðar sem hér segir:
Launasjóður hönnuða, tilnefndur af samtökum hönnuða og arkitekta
Erla Björk Baldursdóttir, formaður
Emilía Borgþórsdóttir
Ragnar Frank Kristjánsson
Launasjóður kvikmyndahöfunda
Björn Þór Vilhjálmsson, formaður, tilnefndur af félagi leikskálda og
handritshöfunda
Ester Bíbí Ásgeirsdóttir, tilnefnd af félagi leikskálda og handritshöfunda
Gréta Óladóttir, tilnefnd af félagi kvikmyndaleikstjóra
Launasjóður myndlistarmanna, tilnefndur af Sambandi íslenskra myndlistarmanna
Hlynur Helgason, formaður
Inga Jónsdóttir
Karl Ómarsson
Launasjóður rithöfunda tilnefndur af Rithöfundasambandi
Íslands
Jórunn Th. Sigurðardóttir, formaður
Gunnar Skarphéðinsson
Hildur Ýr Ísberg
Launasjóður sviðslistafólks tilnefndur af Sviðslistasambandi
Íslands
Pétur Ármannsson, formaður
Hafliði Arngrímsson
Þóra Einarsdóttir
Launasjóður tónlistarflytjenda
Helgi Jónsson, formaður, tilnefndur af Félagi íslenskra tónlistarmanna
Þóra Sif Svansdóttir, tilnefndur af Félagi íslenskra hljómlistarmanna
Hlín Erlendsdóttir, tilnefnd af Félagi íslenskra hljómlistarmanna
Launasjóður tónskálda
Hafdís Bjarnadóttir, formaður tilnefndur af Tónskáldafélagi Íslands
Magnús A. Jensson, tilnefnd af Tónskáldafélagi Íslands
Ragnheiður Eiríksdóttir, tilnefnd af Félagi tónskálda og textahöfunda
Stjórn listamannalauna - skipuð 1. júní 2024 - 31. maí 2027
Jónatan Garðarsson formaður, skipaður án tilnefningar,
Kolbrún Ýr Einarsdóttir, tilnefnd af Bandalagi íslenskra listamanna,
Eva María Árnadóttir tilnefnd af Listaháskóla Íslands.
*Birt með fyrirvara um villur
Úthlutunarnefndir Launasjóðs listamanna starfa skv. lögum (57/2009) og reglugerð (834/2009) um listamannalaun, þar sem kveðið er á um að allar umsóknir fái sanngjarna umfjöllun.