Hoppa yfir valmynd
6. desember 2024 Utanríkisráðuneytið, Matvælaráðuneytið

Íslenskt lambakjöt orðið verndað afurðaheiti í Bretlandi

Sendinefndir ríkjanna. - mynd

Sameiginleg nefnd fríverslunarsamnings EES EFTA-ríkjanna við Bretland samþykkti í vikunni gagnkvæma viðurkenningu á landfræðilegum afurðaheitum Íslands og Bretlands. Íslenskt lambakjöt er þar með orðið verndað afurðaheiti í Bretlandi sem þýðir að hægt verður að vísa sérstaklega til íslensks uppruna vörunnar þegar kjötið er selt á breskum markaði.

Fríverslunarsamningurinn við Bretland er einn umfangsmesti og mikilvægasti viðskiptasamningur Íslands, en árlegur fundur sameiginlegrar nefndar samningsaðila fór fram í Lundúnum í gær. Nefndin fjallaði sömuleiðis um gagnkvæma viðurkenningu starfsréttinda, nýtingu tollfríðinda undir samningnum og framfylgd ákvæðis um gagnareiki milli landanna.

Fríverslunarsamningi EES EFTA-ríkjanna, það er Íslands, Lichtenstein og Noregs, við Bretland hefur verið beitt frá árinu 2022  og miðar að því að tryggja náin viðskiptatengsl samningsaðila í kjölfar útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu og evrópska efnahagssvæðinu, en Bretland er meðal stærstu viðskiptalanda Íslands. Fulltrúar landanna frá ýmsum fagráðuneytum og stofnunum vinna þétt saman árið um kring við að tryggja að samningurinn virki eins og honum er ætlað að gera fyrir almenning og fyrirtæki. 

Meðal ráðuneyta og stofnana sem koma að samstarfinu fyrir Íslands hönd eru utanríkisráðuneytið, matvælaráðuneytið, fjármálaráðuneytið, félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, innviðaráðuneytið, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið, Útlendingastofnun, Vinnumálastofnun, MAST og Skatturinn. 

Fyrir hönd utanríkisráðuneytisins sóttu fundinn Bylgja Árnadóttir af viðskiptaskrifstofu ráðuneytisins og Jóhanna Jónsdóttir varamaður sendiherra Íslands í London.

Hægt er að nálgast samninginn hér.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta