Hoppa yfir valmynd
9. desember 2024 Matvælaráðuneytið

Niðurstaða úthlutunar á tollkvótum á landbúnaðarvörum sem taka gildi 1. janúar 2025

Niðurstaða úthlutunar á tollkvótum á landbúnaðarvörum sem taka gildi 1. janúar 2025 - myndiStock/James Hendricks

Nýverið lauk úthlutunarferli tollkvóta á landbúnaðarvörum sem taka allir gildi 1. janúar nk. og gilda ýmist í 6 eða 12 mánuði. Í nær öllum tilvikum var umfram eftirspurn eftir tollkvótum og var þeim því úthlutað með útboði. Um er að ræða tollkvóta sem veita heimild til innflutnings á kjöti, unnum kjötvörum, ostum og plöntum án tolla eða á lægri tollum en tollskrá segir til um. Um niðurstöður hverrar úthlutunar má lesa að neðan.

Niðurstöður úthlutunar á ESB tollkvótum

Laugardaginn 30. nóvember síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópusambandinu samkvæmt reglugerð nr. 1168/2024 fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2025. Útboðsgjald tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er. Samtals bárust 23 tilboð í tollkvótann.

Magni tollkvóta sem auglýst var til umsóknar var úthlutað að fullu. Samanlagt var 1.906 tonna tollkvóta úthlutað og var meðalútboðsgjald 556 kr./kg.

Vörulýsing

Tollkvóta úthlutað (kg)

Fjöldi samþykktra tilboða

Jafnvægisverð (kr./kg)

Nautgripakjöt

348.000

11

597

Svínakjöt

350.000

8

420

Alifuglakjöt

428.000

9

587

Alifuglakjöt*

100.000

4

50

Reykt og saltað kjöt

50.000

8

373

Sérostur **

115.000

9

0

Ostur

190.000

9

1.050

Pylsur

125.000

11

409

Unnar kjötvörur

200.000

10

900

 

 

 

 

(*) alifuglakjöt lífrænt ræktað/lausagöngu, í vörulið úr 0207

(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla. Úthlutað með hlutkesti.

Nánari upplýsingar um niðurstöður útboðsins má finna hér.

Niðurstöður úthlutunar á tollkvótum vegna innflutnings á ostum frá Noregi

Laugardaginn 30. nóvember síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á vegna innflutnings á smurostum frá Noregi, samkvæmt reglugerð nr. 1166/2024 fyrir tímabilið 1. janúar 2025 til 31. desember 2025. Útboðsgjald tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er. Samtals bárust 5 tilboð í tollkvótann.

Vörulýsing

Tollkvóta úthlutað (kg)

Fjöldi samþ. tilboða

Jafnvægisverð (kr./kg)

Smurostur

13.000

4

1


Nánari upplýsingar um niðurstöður útboðsins má finna hér.

Niðurstöður úthlutunar á tollkvótum vegna innflutnings á ostum og unnum kjötvörum frá Bretlandi

Laugardaginn 30. nóvember síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og unnum kjötvörum, með vísan til reglugerðar nr. 1169/2024 fyrir tímabilið 1. janúar 2025 til 31. janúar 2025. Útboðsgjald tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er. Samtals bárust 11 tilboð í tollkvótann.
Magni tollkvóta sem auglýst var til umsóknar var úthlutað að fullu. Samanlagt var 48,3 tonna tollkvóta úthlutað og var meðalútboðsgjald 543 kr./kg.

Vörulýsing

Tollkvóta úthlutað (kg)

Fjöldi samþ. tilboða

Jafnvægisverð (kr./kg)

Sérostur **

11.000

7

0

Ostur

19.000

2

800

Unnar kjötvörur

18.300

2

603


Nánari upplýsingar um niðurstöður útboðsins má finna hér.

Niðurstöður úthlutunar á tollkvótum fyrir plöntur og blóm

Laugardaginn 30. nóvember síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á blómum með vísan til 65. gr. búvörulaga nr. 99/1993 og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl. nr. 1167/2024 fyrir tímabilið 1. janúar 2025 til 30. júní 2025. Útboðsgjald tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er. Samtals bárust 3 tilboð í tollkvótann.
Magni tollkvóta sem auglýst var til umsóknar var úthlutað ekki úthlutað að fullu, en engin tilboð bárust í blómstrandi plöntur og pottaplöntur. Samanlagt var 177.250 stk. tollkvóta úthlutað og var meðalútboðsgjald 43 kr./stk.

Vörulýsing

Tollkvóta úthlutað (stk.)

Fjöldi samþ. tilboða

Jafnvægisverð (kr./stk.)

Blómstrandi plöntur

0

-

-

Pottaplöntur

0

-

-

Rósir

2.000

1

63

Tryggðarblóm

9.000

1

61

Afskorin blóm

166.250

2

40


Nánari upplýsingar um niðurstöður útboðsins má finna hér.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta