Hoppa yfir valmynd
9. desember 2024 Innviðaráðuneytið

Sautján milljónum úthlutað til verslunar í dreifbýli

Innviðaráðherra hefur staðfest tillögur valnefndar um verkefnastyrki til verslana í dreifbýli, sem veittir eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036. Að þessu sinni var sautján milljónum kr. úthlutað til sex verslana í dreifbýli fyrir árið 2025.

Markmiðið með styrkjunum er að styðja við dagvöruverslanir í minni byggðarlögum fjarri stórum byggðakjörnum á fámennum markaðssvæðum til að viðhalda mikilvægri grunnþjónustu. Ýmist eru veittir rekstrarstyrkir eða styrkir til endurbóta eða sjálfvirknivæðingar.

Samtals bárust sex umsóknir fyrir samtals 41,8 m.kr. Eftirtaldar verslanir fengu styrki:

  • Bakka-Búðin ehf., Reykhólum – 5 m.kr. rekstrarstyrkur
  • Verzlunarfjelag Árneshrepps – 3 m.kr. rekstrarstyrkur
  • Hríseyjarbúðin – 2,5 m.kr. styrkur til endurbóta og sjálfvirknivæðingar
  • North East Travel ehf, Bakkafirði – 1,5 m.kr. rekstrarstyrkur
  • Gunnubúð ehf., Raufarhöfn – 3 m.kr. styrkur til endurbóta
  • Verslunarfélag Drangsness – 2 m.kr. rekstrarstyrkur

Þriggja manna valnefnd fór yfir umsóknirnar og gerði tillögur til ráðherra. Í valnefnd sátu þau Elín Gróa Karlsdóttir, verkefnisstjóri hjá Ferðamálastofu, Sigurður Árnason, sérfræðingur á Byggðastofnun, sem jafnframt er formaður og Snorri Björn Sigurðsson fyrrverandi forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar. Með valnefnd starfaði Sigríður K. Þorgrímsdóttir sérfræðingur hjá Byggðastofnun. Skipun valnefndar og mat umsókna voru í samræmi við reglur um úthlutun innviðaráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta