Hoppa yfir valmynd
10. desember 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

28 verkefni hljóta styrk úr Hvata

Styrkjum hefur verið úthlutað úr Hvata, styrktarsjóði til verkefna á málefnasviðum menningar- og viðskiptaráðherra. Alls hlutu 28 verkefni styrk úr seinni úthlutun fyrir árið 2024, alls að upphæð 24.900.000 kr. Í heildina sóttu 64 verkefni um styrki að heildarupphæð 159.134.500 kr.

Hvati er styrktarsjóður innan menningar- og viðskiptaráðuneytisins. Styrkjum úr Hvata er úthlutað til ákveðinna verkefna á vegum félaga og samtaka til eins árs í senn. Verkefnin skulu ekki njóta lögbundins stuðnings eða falla undir sjóði eða sérstaka samninga. Þá eru hvorki veittir styrkir til nefndarsetu eða styrkir til BA/BS-, eða meistaraprófsverkefna. Frekari upplýsingar um næstu áætluðu úthlutun verða birtar á vef ráðuneytisins eftir áramót.  Sjá nánar um Hvata hér.

 

*Listinn er birtur með fyrirvara um villur.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta