39 sóttu um starf forstjóra Nýsköpunarsjóðsins Kríu
Staða forstjóra Nýsköpunarsjóðsins Kríu var auglýst nýverið og var umsóknarfrestur til 2. desember sl. Alls sóttu 39 manns um starfið en 15 umsækjendur drógu umsókn sína til baka.
Umsækjendur eru:
- Aron Heiðar Steinsson, verkstjóri
- Axel Freyr Gíslason, sölumaður
- Daníel Ólafsson, sérfræðingur í markaðssetningu á netinu
- Einar Torfi Einarsson Reynis, gagnasérfræðingur
- Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri
- Eyjólfur Vilberg Gunnarsson, framkvæmdastjóri
- Gísli Rafn Ólafsson, þingmaður
- Grímur Sigurðarson, lögmaður
- Gunnar Halldórsson, rekstrarstjóri
- Hreinn Þór Hauksson, framkvæmdastjóri
- Hrönn Greipsdóttir, framkvæmdastjóri
- Íris Dögg Jónsdóttir, verkefnastjóri
- Jódís Skúladóttir, þingmaður
- Jón Bragi Gíslason, lögfræðingur og frumkvöðull
- Jón Steingrímsson, sjálfstætt starfandi
- Kristín Hrefna Halldórsdóttir, forstöðumaður
- Ladislav Mach, vaktstjóri
- Rakel Þóra Sverrisdóttir, lögfræðingur
- Rohit Goswami, hugbúnaðarverkfræðingur
- Sæmundur K Finnbogason, sjóðsstjóri
- Salóme Guðmundsdóttir, sölu og markaðsstjóri
- Stefán Þór Helgason, þjónustu og viðskiptaþróunarstjóri
- Þóra Björk Elvarsdóttir, fulltrúi fjárhagsdeildar
- Þorleifur Jónsson, fasteignasali
Í frumvarpi sem samþykkt var í júní 2024 voru Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins (NSA) og Kría – sprota- og nýsköpunarsjóður, sameinaðir í nýjan sjóð undir heitinu Nýsköpunarsjóðurinn Kría. Nýsköpunarsjóðnum Kríu er ætlað að veita stuðning við nýsköpun í formi fjárfestinga og mun sjóðurinn geta beitt fjölbreyttum aðferðum við fjárfestingu í samræmi við stöðu fjármögnunarumhverfis og stefnu stjórnvalda hverju sinni. Sjóðnum er ætlað að ná til sprota- og nýsköpunarfyrirtækja, vísisjóða og annarra aðila, svo sem þeirra sem vinna að nýskapandi lausnum við samfélagslegum áskorunum, sjálfbærni og grænum umskiptum.