Kynningarfundur um tækifæri á styrkjum vegna vinnumarkaðsmála og félagslegrar nýsköpunar
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Rannís boða til opins kynningarfundar um félags- og vinnumálaáætlun Evrópusambandsins. Áætlunin styrkir fjölbreytt verkefni á sviði vinnumarkaðsmála og félagslegrar nýsköpunar.
Kynningarfundurinn fer fram þriðjudaginn 7. janúar kl. 15:00-16:30 í sal Sambands íslenskra sveitarfélaga, Borgartúni 30, 6. hæð.
Áætlunin fjármagnar stefnumótandi verkefni á fjórum lykilsviðum:
- atvinnu og hæfni
- vinnumarkaði og hreyfanleika vinnuafls
- félagslegri vernd og virkri aðlögun
- vinnuaðstæðum
Áætlunin er opin öllum sveitarfélögum, hagaðilum vinnumarkaðarins, stofnunum, fyrirtækjum, frjálsum félagasamtökum, ýmsum opinberum aðilum og háskólum.
Dagskrá*
- Kveðja frá Brussel
- Gunnhildur Gunnarsdóttir, fulltrúi félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins í sendiráðinu í Brussel
- Hvað gerir félagsmálasjóður Evrópusambandsins?
- Andrés Pétursson, sérfræðingur hjá Rannís
- Hvernig gekk að sækja um í ,,Employment and Social Innovation (EaSI) áætlun ESB?
- Soffía Erla Einarsdóttir, Signý Jóna Hreinsdóttir og Hlynur Jónasson, verkefnastjórar hjá geðsviði Landsspítalans
- Góð almenn ráð varðandi umsóknir til Evrópusambandsins.
- Aðalheiður Jónsdóttir, sviðsstjóri mennta og menningarsviðs Rannís
- Lokaorð
- Arnar Þór Sævarsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga.
*Birt með fyrirvara um breytingar
Aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn.
Fyrir þau sem ekki eiga heimangengt á fundinn verður hægt að fylgjast rafrænt með á Teams.
Vinsamlegast látið vita á skráningarblaðinu ef þið ætlið að fylgjast rafrænt með fundinum.