Hoppa yfir valmynd
23. desember 2024 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Auglýst eftir umsóknum um styrki úr afrekssjóði í skák

Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr afrekssjóði í skák. Styrkjunum er ætlað að styrkja afreksskákfólk og efnilegt skákfólk sem stefnir að alþjóðlegum árangri og bæta árangur keppnisfólks í skák.

Markmið afrekssjóðs í skák er að búa afreksskákfólki og efnilegu skákfólki fjárhagslega og faglega umgjörð til að hámarka árangur sinn í skák.

lög um skák taka gildi 1. febrúar 2025. Þá verða störf og föst laun stórmeistara lögð niður. Í reglugerð um afrekssjóð í skák er tilgreint með hvaða hætti styrkveitingar munu fara fram.

Styrkir eru veittir til skilgreindra verkefna og taka mið af væntum árangri umsækjenda það árið. Fjárveiting til afrekssjóðs í skák er samkvæmt fjárlögum 38,2 m.kr. Styrkveitingar verða ákvarðaðar í samræmi við reglugerð um afrekssjóð í skák, þriggja ára stefnu um úthlutun og áherslur sem ákveðnar eru ár hvert vegna úthlutunar styrkja úr sjóðnum.

  • Við úthlutun styrkja árið 2025 er lögð áhersla á að stórmeistari, sem gegndi starfi og fékk laun á grundvelli laga um launasjóð stórmeistara í skák njóti forgangs til styrkja úr afrekssjóði a.m.k. fyrstu þrjá mánuðina.
  • Miðað er við að heildarstyrkupphæð deilist 85% til afreksskákfólks og 15% til efnilegs skákfólks. Miðað er við að afreksskákfólk fái um 520 þúsund á mánuði og efnilegt skákfólk fái um 260 þúsund.
  • Alþjóðleg kappskákmót hafa hærra vægi við mat á umsóknum.
  • Kostnaður við ferðalög er innifalinn í styrk.
  • Hljóti afreksskákfólk styrk í 9 mánuði eða meira fylgir því kennslu- eða fræðsluskylda við Skákskóla Íslands í samráði við Skákskóla Íslands og stjórn afrekssjóðs í skák.

Styrkjum er úthlutað einu sinni á ári og skulu veittir í þrjá til tólf mánuði í senn. Í undantekningartilfellum er heimilt að veita styrki í styttri eða lengri tíma en þó aldrei lengur en þrjú ár.

Umsóknarfrestur er til og með 20. janúar 2025.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta