Logi Einarsson er nýr samstarfsráðherra Norðurlanda
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra um að Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, gegni stöðu samstarfsráðherra Norðurlanda. Samstarfsráðherra Norðurlanda ber á byrgð á norrænu ríkisstjórnarsamstarfi innan Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir hönd forsætisráðherra.
Norræna ráðherranefndin var sett á fót árið 1971 og er samstarfsvettvangur ríkisstjórna Íslands, Danmerkur, Finnland, Noregs og Svíþjóðar auk sjálfsstjórnarlandanna Álandseyja, Færeyja og Grænlands. Framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar sem samþykkt var í Reykjavík 2019 felur í sér markmið um að Norðurlöndin verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims fyrir 2030.