Nýir tollfrjálsir kvótar Evrópusambandsins á íslenskum sjávar- og eldisafurðum taka gildi 1. janúar 2025
Þann 1. janúar 2025 taka gildi átta nýir tollfrjálsir innflutningskvótar til Evrópusambandsins (ESB). Kvótarnir veita aukna útflutningsmöguleika fyrir íslenskar afurðir bæði úr sjávarútvegi og fiskeldi.
Samhliða viðræðum um framlag til Uppbyggingarsjóðs EES sömdu Ísland og ESB um markaðsaðgang fyrir íslenskar sjávarafurðir þann 30. nóvember 2023. Samningurinn nær yfir tímabilið 1. maí 2021 til 30. apríl 2028 og felur í sér átta tollkvóta fyrir fleiri en 50 tollanúmer.
„ESB er okkar mikilvægasti markaður og nýju tollkvótarnir veita tollfrjálsan aðgang fyrir margfalt fleiri afurðir en hingað til,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Stórir safnkvótar auka síðan sveigjanleika útflytjenda og tryggja vonandi að kvótarnir nýtist til fulls. Þetta er jákvætt skref en ég vonast auðvitað til þess að þau verði enn fleiri í átt að auknu tollfrelsi, bæði í inn- og útflutningi.“
Tímafrekar samningaviðræður og fullgildingarferli hafa gert það að verkum að töluvert er liðið á tímabilið sem um var samið. Til þess að koma til móts við það var samið um að ónýtt kvótamagn, á tímabilinu frá 1. maí 2021 og þar til kvótarnir verða opnaðir 1. janúar 2025, muni dreifast á þann samningstíma sem eftir er, eða til 30. apríl 2028. Þannig var umsamið heildarmagn kvótanna 15 þúsund tonn árlega en verður meira en tvöfalt það út tímabilið. Verði kvótarnir ekki fullnýttir í lok samningstímabilsins verður hægt að nýta það magn sem eftir er til 30. apríl 2030 eða þar til nýr samningur liggur fyrir.
Þá náðist samkomulag um að ráðist verði í heildstæða endurskoðun á viðskiptakjörum Íslands og ESB, en stefnt er að því að þeim viðræðum verði lokið á samningstímabilinu. Með þessu móti hefur verið skapaður vettvangur til viðræðna við ESB um greiðari aðgang Íslands að innri markaði ESB, ekki síst fyrir sjávarafurðir.
Tengill á reglugerð framkvæmdastjórnar ESB: Implementing regulation - EU - 2024/3165 - EN - EUR-Lex
Eftirfarandi kvótar verða opnaðir frá 1. janúar 2025:
Númer kvóta |
Tollskrárnúmer |
Vörulýsing |
Kvótatímabil |
Nettóþyngd í tonnum |
09.0839 |
0303 51 00 |
Fryst síld (Clupea harengus, Clupea pallasii) |
1.1.2025-30.4.2025 1.5.2025-30.4.2026 1.5.2026-30.4.2027 1.5.2027-30.4.2028 |
280 840 840 840 |
|
|
|||
|
|
|||
|
|
|||
09.0840 |
0304 49 50 |
Ný eða kæld flök af karfa (Sebastes spp.) |
1.1.2025-30.4.2025 1.5.2025-30.4.2026 1.5.2026-30.4.2027 1.5.2027-30.4.2028 |
1.750 5.250 5.250 5.250 |
|
|
|||
|
|
|||
|
|
|||
09.0841 |
0306 15 00 |
Frystur leturhumar (Nephrops norvegicus), jafnvel reyktur, í skel eða skelflettur, þar með talinn humar í skel, soðinn í gufu eða vatni |
1.1.2025-30.4.2025 1.5.2025-30.4.2026 1.5.2026-30.4.2027 1.5.2027-30.4.2028 |
70 210 210 210 |
|
|
|||
|
|
|||
|
|
|||
09.0834 |
1604 19 92 |
Framleiðsla úr þorski og öðrum fiski |
1.1.2025-30.4.2025 1.5.2025-30.4.2026 1.5.2026-30.4.2027 1.5.2027-30.4.2028 |
1.400 4.200 4.200 4.200 |
|
1604 20 90 |
|||
|
|
|||
|
|
|||
09.0835 |
|
Nýr eða kældur |
1.1.2025-30.4.2025 1.5.2025-30.4.2026 1.5.2026-30.4.2027 1.5.2027-30.4.2028 |
3.850 11.550 11.550 11.550 |
|
0302 23 00 |
Sólflúra (Solea spp.) |
||
|
03022400 |
Sandhverfa (Psetta maxima) |
||
|
0302 29 |
Stórkjafta og annar flatfiskur, nýr eða kældur, þó ekki fiskflök og annað fiskkjöt |
||
|
Úr 0302 59 90 |
Fiskur af ættunum Bregmacerotidae, Euclichthyidae, Gadidae, Macrouridae, Melanonidae, Merlucciidae, Moridae og Muraenolepididae |
|
|
|
0302 82 00 |
Skata (Rajidae) |
|
|
|
0302 89 50 |
Skötuselur (Lophius spp.) |
|
|
|
0302 89 90 |
Annar nýr eða kældur fiskur, ót.a. |
|
|
|
|
Frystur |
|
|
|
0303 32 00 |
Skarkoli (Pleuronectes platessa) |
|
|
|
0303 39 85 |
Flatfiskur |
|
|
|
Úr 0303 59 90 |
Indlandsmakríll (Rastrelliger spp.) |
|
|
|
Úr 0303 69 90 |
Fiskur af ættunum Bregmacerotidae, Euclichthyidae, Gadidae, Macrouridae, Melanonidae, Merlucciidae, Moridae og Muraenolepididae |
|
|
|
0303 82 00 |
Skata (Rajidae) |
|
|
|
0303 89 90 |
Fiskur, ót.a. |
|
|
|
0303 99 00 |
Fiskuggar, hausar, sporðar, magar og annar ætur fiskúrgangur |
|
|
|
0304 43 00 |
Ný eða kæld flök af flatfiski (Pleuronectidae, Bothidae, Cynoglossidae, Soleidae, Scophthalmidae og Citharidae) |
|
|
|
Úr 0304 44 90 |
Ný eða kæld flök af fiski af ættunum Bregmacerotidae, Euclichthyidae, Gadidae, Macrouridae, Melanonidae, Merlucciidae, Moridae og Muraenolepididae, |
|
|
|
0304 46 |
Ný eða kæld flök af tannfiski |
|
|
|
0304 49 10 |
Ný eða kæld flök af ferskvatnsfiski |
|
|
|
0304 49 90 |
Ný eða kæld flök af öðrum fiski, ót.a. |
|
|
|
0304 95 10 |
Fryst súrímí |
|
|
09.0836 |
0305 39 10 |
Flök af laxi, söltuð eða í saltlegi en ekki reykt |
1.1.2025-30.4.2025 1.5.2025-30.4.2026 1.5.2026-30.4.2027 1.5.2027-30.4.2028 |
35 105 105 105 |
|
0305 42 00 |
Reykt síld |
||
|
0305 69 50 |
Lax, aðeins saltaður eða í saltlegi |
||
|
0305 41 00 |
Reyktur lax, þ.m.t. flök |
||
09.0837
|
0305 72 00 |
Fiskhausar, sporðar og magar, reyktir, þurrkaðir, saltaðir eða í saltlegi |
1.1.2025-30.4.2025 1.5.2025-30.4.2026 1.5.2026-30.4.2027 1.5.2027-30.4.2028 |
1.365 4.095 4.095 4.095 |
|
0305 79 00 |
Fiskuggar og annar ætur fiskúrgangur, reykt, þurrkað, saltað eða í saltlegi |
||
|
0305 43 00 |
Reyktur silungur (Salmo trutta, Oncorhynchus mykiss, Oncorhynchus clarki, Oncorhynchus aguabonita, Oncorhynchus gilae, Oncorhynchus apache og Oncorhynchus chrysogaster) |
||
|
0305 49 80 |
Annar reyktur fiskur |
||
|
1604 11 00 |
Lax, unninn eða varinn skemmdum, heill eða í hlutum (þó ekki hakkaður) |
|
|
|
1604 20 10 |
Niðursoðinn fiskur, lifur, bollur |
||
|
1605 61 00 |
Sæbjúgu, unnin eða varin skemmdum |
||
|
1605 62 00 |
Ígulker, unnin eða varin skemmdum |
|
|
09.0838 |
0302 22 00 |
Nýr eða kældur skarkoli (Pleuronectes platessa) |
1.1.2025-30.4.2025 1.5.2025-30.4.2026 1.5.2026-30.4.2027 1.5.2027-30.4.2028 |
1.750 5.250 5.250 5.250 |
|
0302 59 20 |
Ný eða kæld lýsa (Merlangius merlangus) |
||
|
0304 49 10 |
Ný eða kæld flök af ferskvatnsfiski, ót.a. |
||
|
0304 52 00 |
Nýtt eða kælt kjöt, einnig hakkað, af laxfiski |
||
|
0304 89 10 |
Fryst flök af ferskvatnsfiski, ót.a. |
||
|
0305 69 80 |
Annar fiskur, einungis saltaður eða í saltlegi |
||
|
0304 82 10 |
Fryst flök of silungi „Oncorhynchus mykiss“ að þyngd meira en 400 grömm hvert |
||
|
0304 82 90 |
Fryst flök of silungi „Oncorhynchus mykiss“ |
||
|
0302 59 40 |
Ný eða kæld langa (Molva spp.) |
||
|
0305 53 90 |
Þurrkaður fiskur af ættunum Bregmacerotidae, Euclichthyidae, Gadidae, Macrouridae, Melanonidae, Merlucciidae, Moridae og Muraenolepididae, þó ekki þorskur |
||
|
0303 14 20 |
Frystur silungur „Oncorhynchus mykiss“, með haus og tálknum, slægður, yfir 1,2 kg, eða hauslaus að þyngd meira en 1 kg hvert |
||
|
0303 14 90 |
Frystur silungur „Oncorhynchus mykiss“ |
||
|
0302 14 00 |
Nýr eða kældur Atlantshafslax „Salmo salar“ og Dónárlax „Hucho hucho“ |
||
|
0303 13 00 |
Frystur Atlantshafslax „Salmo salar“ og Dónárlax „Hucho hucho“ |
||
|
0304 41 00 |
Ný eða kæld flök af Kyrrahafslaxi (Oncorhynchus nerka, Oncorhynchus gorbuscha, Oncorhynchus keta, Oncorhynchus tschawytscha, Oncorhynchus kisutch, Oncorhynchus masou og Oncorhynchus rhodurus), Atlantshafslaxi (Salmo salar) og Dónárlaxi (Hucho hucho) |
||
|
0304 81 00 |
Fryst flök af Kyrrahafslaxi (Oncorhynchus nerka, Oncorhynchus gorbuscha, Oncorhynchus keta, Oncorhynchus tschawytscha, Oncorhynchus kisutch, Oncorhynchus masou og Oncorhynchus rhodurus), Atlantshafslaxi (Salmo salar) og Dónárlaxi (Hucho hucho) |
|