Hoppa yfir valmynd
30. desember 2024 Innviðaráðuneytið

Endanleg framlög úr Jöfnunarsjóð fyrir árið 2024 vegna útgjalda- og tekjujöfnunarframlaga

Innviðaráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafanefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða úthlutun á tekjujöfnunarframlagi og útgjaldajöfnunarframlagi fyrir árið 2024.

Útgjaldajöfnunarframlög árið 2024

Ráðherra samþykkti tillögu ráðgjafanefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða úthlutun á útgjaldajöfnunarframlögum fyrir árið 2024, samkvæmt 14. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga nr. 1088/2018. Samþykkt var að hækka útgjaldajöfnunarframlög sjóðsins vegna ársins 2024 um 250 m.kr. Við endurskoðunina var tekið mið af leiðréttum hámarkstekjum á íbúa í hverju sveitarfélagi. Framlögin nema samtals 16,050 ma.kr. Þar af eru framlög vegna skólaaksturs úr dreifbýli 750 m.kr. á árinu og framlög vegna akstursþjónustu fyrir fatlaða úr dreifbýli 25 m.kr. Framlög ársins 2023 námu 15,5 ma.kr. og hækka framlögin á árinu 2024 því um 550 m.kr. sem er um 4% hækkun.

Tekjujöfnunarframlög árið 2024

Þá var samþykkt tillaga ráðgjafanefndar um endurskoðaða úthlutun á tekjujöfnunarframlögum fyrir árið 2024, samkvæmt 13. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga nr. 1088/2018. Við endurskoðun var tekið mið af endanlegum útsvarsstofni sveitarfélaga vegna tekna á árinu 2023. Heildarúthlutun tekjujöfnunarframlaga í ár nemur 1,4 ma.kr.  ¾ hlutar framlaganna, 1,05 ma.kr. komu til greiðslu í október. Eftirstöðvar framlaga, 350 m.kr. hafa þegar komið til greiðslu. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta