Hoppa yfir valmynd
6. janúar 2025 Innviðaráðuneytið

Alexander Jakob Dubik og Andri Egilsson aðstoða samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra

Alexander Jakob Dubik og Andri Egilsson - mynd

Alexander Jakob Dubik og Andri Egilsson hafa verið ráðnir aðstoðarmenn fyrir Eyjólf Ármannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Þeir hafa báðir starfað sem aðstoðarmenn þingflokks Flokks fólksins.

Alexander lauk meistaraprófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands og stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík. Hann hefur starfað sem lögfræðingur og aðstoðarmaður þingflokks Flokks fólksins á Alþingi ásamt því að vera hluti af kosningateymi flokksins.

Andri hóf feril sinn sem gagnagrunnsstjóri hjá sprotafyrirtækinu Videntifier Technologies. Hann hefur einnig starfað í kvikmyndatökudeild True North og sem auglýsingastjóri og meðstjórnandi hjá auglýsingastofunni 99. Eftir það gegndi hann tímabundið hlutverki aðstoðarmanns formanns Flokks fólksins og sem starfsmaður þingflokks Flokks Fólksins og stýrði m.a. kosningaherferðum flokksins árin 2021 og 2024.

Andri og Alexander hafa þegar hafið störf í ráðuneytinu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta