Hoppa yfir valmynd
9. janúar 2025 Utanríkisráðuneytið

Finnland sinnir loftrýmisgæslu á Íslandi í fyrsta sinn

F/A-18 Hornet flugvélar finnska flughersins voru áður á Íslandi 2014, þegar þær tóku þátt í æfingum samhliða loftrýmisgæslu norska flughersins. - myndFinnish Air Force

Flugsveit finnska flughersins er væntanleg til landsins í lok janúar, en þá hefst loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins. Flugsveitin samanstendur af fjórum F/A-18 Hornet orrustuþotum og allt að 50 liðsmönnum. 

Um er að ræða fyrstu loftrýmisgæslu Finna á Íslandi eftir að þeir gengu í Atlantshafsbandalagið. Flugsveitin tekur þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum stjórnstöðva Atlantshafsbandalagsins í Uedem í Þýskalandi og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. 

„Þátttaka Finna í loftrýmisgæslu á Íslandi markar mikilvæg tímamót og sýnir með áþreifanlegum hætti hvernig aðild þessarar norrænu vinaþjóðar Íslendinga að Atlantshafsbandalaginu styrkir og dýpkar varnarsamvinnu okkar og eykur öryggi Íslendinga,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.  

Framkvæmd verkefnisins verður með sama fyrirkomulagi og undanfarin ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland. 

Flugsveitin hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli ásamt flugsveitum aðildarríkja Atlangshafsbandalagsins sem sinna kafbátaeftirliti úti fyrir ströndum Íslands. Varnarmálasvið Landhelgisgæslu Íslands annast framkvæmd verkefnisins, í umboði utanríkisráðuneytisins, í samstarfi við Isavia. 

Með fyrirvara um veður er gert ráð fyrir aðflugsæfingum á varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 24. janúar til 7. febrúar.  

Ráðgert er að loftrýmisgæslunni ljúki í lok febrúar. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta