Hoppa yfir valmynd
9. janúar 2025 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Úthlutun úr Íþróttasjóði 2025

Mennta- og barnamálaráðherra hefur samþykkt tillögu Íþróttanefndar um úthlutun styrkja úr Íþróttasjóði fyrir árið 2025. Úthlutað er til 71 verkefnis fyrir alls 21,15 milljónir króna.

Nefndinni bárust alls 194 umsóknir að upphæð rúmlega 230 m.kr. um styrki úr Íþróttasjóði fyrir árið 2025.

Alls bárust 114 umsóknir um styrki til að bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar að upphæð um 140 m.kr.. Styrkumsóknir um fræðslu- og útbreiðsluverkefni voru 71 að upphæð 72,4 m.kr. og umsóknir vegna íþróttarannsókna voru 9 að upphæð 17,5 m.kr..

Nánari upplýsingar eru veittar á vef Rannís sem annast umsýslu sjóðsins fyrir mennta- og barnamálaráðuneytið.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta