Hoppa yfir valmynd
10. janúar 2025 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Skýrsla um stöðu Listasafn Íslands rædd í ríkisstjórn

Logi Már Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra lagði fram á ríkisstjórnarfundi í morgun minnisblað um húsnæðisstöðu Listasafn Íslands. Í aðgerð 5 í myndlistarstefnu, sem samþykkt var á Alþingi í maí 2023, var starfshópi falið að greina stöðu Listasafns Íslands og var skýrsla þess efnis kynnt á málþingi um myndlistarstefnu í desember síðast liðinn.

Í skýrslunni kemur fram að starfshópnum var fljótt ljóst að ástand húsnæðismála safnsins myndi móta heildarumræður starfshópsins. Safnið hefur verið í sama húsnæði frá árinu 1987 en upprunalega var hluti byggingarinnar reistur sem íshús. Hefur safnkostur margfaldast á þeim tíma og kröfur um aðbúnað til varðveislu og sýningahalds orðið umfangsmeiri. Í safnalögum frá 2011 er Listasafn Ísland flokkað sem eitt af þremur höfuðsöfnum landsins og hlutverk þess eftir því. Sem höfuðsafn á sviði myndlistar er Listasafni Íslands skylt að safna íslenskri myndlist, vera miðstöð varðveislu, rannsókna, heimildasöfnunar og miðlunar á íslenskri myndlist. Listasafn Íslands skal leitast við að koma upp metnaðarfullu safni íslenskrar myndlistar, skrá það, rannsaka, varðveita og miðla, innan lands og utan.

Núverandi húsnæðisaðstaða safnsins heftir getu og framþróun safnsins til að sinna lögbundnu starfi sínu og þar af leiðandi getur safnið ekki uppfyllt skyldur sínar gagnvart öðrum söfnum né sinnt forystuhlutverki sínu hvað varðar varðveislu, rannsóknir og miðlun. Því sé brýnasta úrlausnarefni safnsins að koma á varðveisluhúsnæði sem uppfyllir innlendar og erlendar kröfur um slíkt húsnæði. Fram kemur að vinnuaðstæður í mörgum varðveislurýmum Listasafns Íslands séu óviðunandi og ekki öruggar starfsfólki né verkum. Sem höfuðsafn á sviði myndlistar uppfyllir það ekki þær kröfur sem Safnaráð gerir til viðurkenndra safna um varðveislurými. Í varðveisluhúsnæði skal öryggi verka tryggt með öflugum eldvarnarkerfum, meindýravörnum, stýringu á raka og hita og fl. Slíkt húsnæði er einnig vinnuaðstaða þar sem viðhaldi og viðgerðum er sinnt og verk eru ljósmynduð, rannsökuð og forvarin sem er hluti af lögbundinni starfsemi safnsins.

Í skýrslunni er jafnframt fjallað um sýningarrými Listasafn Íslands sem talið er of lítið til að uppfylla skyldur safnsins auk þess sem lögð er rík áhersla á að byggja þurfi upp öflugt innra starf með getu til að sinna rannsóknarstarfi. Þetta er grundvallaratriði svo setja megi íslenska myndlist í samhengi við alþjóðlega strauma og þar með kynna íslenska myndlist erlendis. Einnig er fjallað um mikilvægi þess að auka getu safnsins til innkaupa. Safnið hefur ekki burði til að safna íslenskri listasögu eins og staðan er nú varðandi innkaup.

Leggja skýrsluhöfundar til að kannaðir séu þrír möguleika til bregðast við húsnæðisvanda safnsins:

  1. Uppbygging og viðbygging á Fríkirkjuvegi.
  2. Nýta og aðlaga aðrar stærri byggingar.
  3. Nýbygging.

Menningarráðuneytið vinnur að greiningu á þeim möguleikum er skýrsluhöfundar hafa lagt til og segir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra Logi Már Einarsson að staðan sé óviðunandi líkt og skýrslan bendi á og áfram verði unnið að lausn málsins.

„Í myndlistarlögum kemur hlutverk Listasafn Íslands skýrt fram og það er mikilvægt að safnið geti uppfyllt lagalega skyldu sína. Það er með öllu óviðunandi að við getum ekki tryggt varðveislu myndlistararfs þjóðarinnar eða boðið upp á fastasýningu á listasögu Íslands vegna plássleysis. Næstu skref eru að ráðuneytið mun fela FSRE að vinna greiningu á þeim möguleika sem talin er vænlegastur og hann kannaður til hlítar með tilheyrandi áætlanagerð. Það er til lítils að fjárfesta í listsköpun ef ekki er hægt að varðveita hana eða sýna með sómasamlegum hætti líkt og Myndlistarstefna leggur upp með,“ segir Logi Már Einarsson.

Skýrsla starfshóps um Listasafn Íslands - Greining á stöðu og tillögur

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á hjalp@utn.is

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta