Hoppa yfir valmynd
20. janúar 2025 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Halla Jónsdóttir aðstoðar menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra

Halla Jónsdóttir. - mynd

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, hefur ráðið Höllu Jónsdóttur sem aðstoðarmann sinn.

Halla lauk grunnnámi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 1998 og meistaranámi í vinnu- og skipulagssálfræði frá Háskólanum í Amsterdam árið 2004. Þá lauk hún einnig MBA-námi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2015. Í meistaranámi sínu í vinnusálfræði lagði Halla áherslu á fræðslu, starfsþróun og hæfni einstaklinga.

Halla starfaði sem fræðslustjóri Landsbankans á árunum 2011-2018 en sem sérfræðingur í fræðslumálum þar á undan. Árin 2018-2021 starfaði Halla sem mannauðs- og rekstrarstjóri hjá Héraðsdómi Reykjavíkur og undanfarin þrjú ár sem forstöðumaður Endurmenntunar Háskóla Íslands. Hún hefur því reynslu og þekkingu úr störfum bæði á almennum markaði og hjá hinu opinbera. Í störfum sínum hefur Halla öðlast reynslu af bæði stjórnun og stefnumótun og -innleiðingu. Þá hefur hún reynslu af því að stýra stefnumótun í fræðslumálum og innleiðingu árangursstjórnunar. Halla hefur störf í lok janúar en Tómas Guðjónsson hefur þegar hafið störf sem aðstoðarmaður menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta