Netöryggisstyrkur Eyvarar: Opið fyrir umsóknir
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í aðra úthlutun netöryggisstyrks Eyvarar. Eyvör er hæfnisetur fræðslu, menntunar og rannsókna á netöryggi og er markmið samstarfsins að efla netöryggisgetu á landsvísu, styðja við íslenskt netöryggissamfélag og tryggja öflugt Evrópusamstarf á sviði netöryggismála. Umsóknarfrestur er til 17. mars nk. kl. 15:00.
Við styrkveitinguna verður lögð áhersla á eftirfarandi flokka:
- Efling netöryggismenningar og vitundar
- Hagnýt menntun, rannsóknir og þróun
- Örugg stafræn þjónusta og nýsköpun
- Öflug löggæsla, netvarnir og þjóðaröryggi
- Skilvirk viðbrögð við atvikum
- Sterkir innviðir, tækni og lagaumgjörð
Hámarksstyrkur verkefna er níu milljónir króna og gerð er krafa um 20% mótframlag frá styrkhöfum. Bæði úthlutunarreglur og handbók liggja fyrir á vef Rannís, sem fer með umsýslu styrksins fyrir hönd Eyvarar. Fyrirtæki með færri en 250 starfsmenn og veltu undir 50 milljónum evra eða efnahagsreikning undir 43 milljónum evra geta sótt um styrkinn. Einnig mega opinberar stofnanir sækja um styrkinn óháð stærð.
Nánari upplýsingar má nálgast á vefsvæði Netöryggisstyrksins.