Hoppa yfir valmynd
21. janúar 2025 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Sviðslistasjóður styrkir fjölbreytt verkefni um rúmlega 155 milljónir

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, ásamt styrkþegun við úthlutun úr Sviðslistasjóði árið 2025. - myndValgarð

Sviðslistaráð úthlutar í ár 98 milljónum króna til 12 atvinnusviðslistahópa og fylgja þeim 102 mánuðir úr launasjóði sviðslistafólks. 98 mánuðum var úthlutað til einstaklinga í úthlutun listamannalauna. Alls nemur stuðningur til sviðslistahópa og sviðslistafólks rúmlega 155 milljónum króna.

Hæstu úthlutun fá að þessu sinni Handbendi brúðuleikhús, Menningarfélagið Tvíeind og Áhugafélagið Díó. Áhersla var lögð á að veittir styrkir væru sem næst þeirri upphæð sem sótt var um.

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra ávarpaði styrkþega við úthlutunina og fjallaði í máli sínu um mikilvægi aðgengis að fjölbreyttu menningarlífi.

„Í stefnu ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á að auka aðgengi landsmanna að menningarlífi óháð efnahag og búsetu og verður það algjört forgangsmál hjá mér að ráðast í aðgerðir sem auka aðgengi.“

Umsóknarfrestur í Sviðslistasjóð rann út 1. október 2024. Alls bárust 115 umsóknir fyrir yfir 1,6 milljarða króna í sjóðinn og launasjóð sviðslistafólks.

Eftirtalin verkefni hljóta stuðning úr Sviðslistajóði og launasjóði sviðslistafólks árið 2025. Nánari upplýsingar og lýsingu á verkefnum má nálgast í frétt á vef Rannís.

Handbendi Brúðuleikhús ehf. 24.000.000 kr.

  • 10.560.000 kr. úr Sviðslistasjóði og 24 mánuðir úr launasjóði sviðslistafólks.
  • Sviðslistahópur: Handbendi Brúðuleikhús
  • Forsvarsmaður: Greta Ann Clough
  • Tegund verkefnis: Brúðuleikhús/barnaleikhús
  • Heiti verkefnis: Rót/Rooted

Menningarfélagið Tvíeind, 22.000.000 kr.

  • 11.920.000 kr. úr Sviðslistasjóði og 18 mánuðir úr launasjóði sviðslistafólks.
  • Sviðslistahópur: Menningarfélagið Tvíeind
  • Forsvarsmaður: Rósa Ómarsdóttir 
  • Tegund verkefnis: Listadans/ópera
  • Heiti verkefnis: Sérstæðan

Áhugafélagið Díó, 18.500.000 kr.

  • 10.660.000 kr. úr Sviðslistasjóði og 14 mánuðir úr launasjóði sviðslistafólks.
  • Sviðslistahópur: Áhugafélagið Díó
  • Forsvarsmaður: Aðalbjörg Þóra Árnadóttir
  • Tegund verkefnis: Leiklist
  • Heiti verkefnis: JÖTUNGÍMA KVEÐUR - minningarorð um mannkyn

Elefant, félagasamtök, 15.000.000 kr.

  • 13.880.000 kr úr sviðslistasjóði og 2 mánuðir úr launasjóði sviðslistafólks.
  • Sviðslistahópur: Elefant, félagasamtök
  • Forsvarsmaður: Jónmundur Grétarsson
  • Tegund verkefnis: Leiklist
  • Heiti verkefnis: Þegar ég sé þig, sé ég mig 2.0

Menningarfélagið MurMur, 14.500.000 kr.

  • 6.660.000 kr. úr sviðslistasjóði og 14 mánuðir úr launasjóði sviðslistafólks.
  • Sviðslistahópur: Púðlur
  • Forsvarsmaður: Kara Hergils Valdimarsdóttir
  • Tegund verkefnis: Leiklist
  • Heiti verkefnis: Púðlusafnið

Svipir ehf, 13.000.000 kr.

  • 3.480.000 kr. úr sviðslistasjóði og 17 mánuðir úr launasjóði sviðslistafólks.
  • Sviðslistahópur: Atvinnuleikhópurinn Svipir
  • Forsvarsmaður: Þór Tulinius
  • Tegund verkefnis: Leiklist
  • Heiti verkefnis: Bústaðurinn

Sviðslistahópurinn Óður, 13.050.000 kr.

  • 5.770.000 kr. úr sviðslistasjóði og 13 mánuðir úr launasjóði sviðslistafólks.
  • Sviðslistahópur: Sviðslistahópurinn Óður
  • Forsvarsmaður: Sólveig Sigurðardóttir
  • Tegund verkefnis: Ópera
  • Heiti verkefnis: Lucia di Lammermoor

Miðnætti leikhús, 12.000.000 kr.

  • Styrkur úr sviðslistasjóði.
  • Sviðslistahópur: Miðnætti
  • Forsvarsmaður: Agnes Þorkelsdóttir Wild
  • Tegund verkefnis: Barnaleikhús
  • Heiti verkefnis: Hreiðrið

Felix Urbina Alejandre, 11.600.000 kr.

  • Styrkur úr sviðslistasjóði.
  • Sviðslistahópur: Beatiful Accidents- Felix Urbina
  • Forsvarsmaður: Felix Urbina Alejandre
  • Tegund verkefnis: Þverfaglegt/listdans.
  • Heiti verkefnis: Song of the Rebel Flower (Látið Blómin Tala)

Kammeróperan ehf. 6.470.000 kr.

  • Styrkur úr sviðslistasjóði.
  • Sviðslistahópur: Kammeróperan
  • Forsvarsmaður: Eggert Reginn Kjartansson
  • Tegund verkefnis: Ópera
  • Heiti verkefnis: Il Tabarro og Gianni Schicchi eftir G. Puccini

Haltáketti, félagasamtök, 3.000.000 kr.

  • Styrkur úr sviðslistasjóði.
  • Sviðslistahópur: VENUS
  • Forsvarsmaður: Anna Guðrún Tómasdóttir
  • Tegund verkefnis: Listdans
  • Heiti verkefnis: VENUS: Ásmundarsalur

Barnamenningarfélagið Skýjaborg, 2.000.000 kr.

  • Styrkur úr sviðslistasjóði.
  • Sviðslistahópur: Bíbí & Blaka
  • Forsvarsmaður: Tinna Grétarsdóttir
  • Tegund verkefnis: Barnaleikhús
  • Heiti verkefnis: Freedom of speech - evrópskt samstarfsverkefni fyrir unglinga

Um Sviðslistaráð

Sviðslistaráð starfar samkvæmt ákvæði 15. gr laga nr. 165/2019 um sviðslistir. Hlutverk Sviðslistasjóðs er að efla íslenskar sviðslistir og standa straum af öðrum verkefnum sem falla undir hlutverk og starfsemi á sviði sviðslista með úthlutun fjár úr sjóðnum til atvinnuhópa.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta