Hoppa yfir valmynd
22. janúar 2025 Matvælaráðuneytið

Matvælasjóður opnar fyrir umsóknir 1. febrúar

Matvælasjóður opnar fyrir umsóknir 1. febrúar 2025 vegna sjöttu úthlutunar sjóðsins, hægt verður að sækja um til miðnættis 28. febrúar 2025.

Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra úr landbúnaðar- og sjávarafurðum á landsvísu. Til úthlutunar úr sjóðnum í ár eru rúmar 477 milljónir króna.

„Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar kemur fram að ýta skuli undir vöxt og verðmætasköpun í matvælaframleiðslu og efla nýsköpun í landbúnaði,“ segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra. „Matvælasjóður er öflugur sjóður sem spilar lykilhlutverk til að koma megi þessum markmiðum í framkvæmd.“

Matvælasjóður veitir styrki í fjórum flokkum:

  • Bára styrkir verkefni á hugmyndastigi, úr hugmynd yfir í verkefni.

  • Kelda styrkir rannsóknaverkefni sem miða að því að skapa nýja þekkingu.

  • Afurð styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi, eru ekki tilbúin til markaðssetningar, en leiða af sér afurð.

  • Fjársjóður styrkir sókn á markaði, hjálpar fyrirtækjum að koma sínum verðmætum á framfæri.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér flokka og handbók sjóðsins vel áður en farið er í að vinna umsókn.

Einungis verður tekið við umsóknum í gegnum Afurð sem er stafrænt stjórnsýslukerfi matvælaráðuneytisins. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu sjóðsins.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta