Hoppa yfir valmynd
23. janúar 2025 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra skipar hagræðingarhóp

Björn Ingi Victorsson (til vinstri), Hildur Georgsdóttir (til hægri), Oddný Árnadóttir (til vinstri) og Gylfi Ólafsson (til hægri). - mynd

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur skipað fjögurra manna starfshóp sem á að skila tillögum um hagræðingu í ríkisrekstri þann 28. febrúar. Hópinn skipa Björn Ingi Victorsson formaður, sem er endurskoðandi og forstjóri Steypustöðvarinnar, Gylfi Ólafsson, hagfræðingur og fyrrverandi forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, Hildur Georgsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum og fyrrverandi yfirlögfræðingur Ríkiskaupa, og Oddný Árnadóttir, framkvæmdastjóri Landssambands eldri borgara (LEB) sem áður var deildarstjóri hjá Valitor.

Hagræðingarhópurinn hefur þegar tekið til starfa. Hópurinn mun m.a. vinna úr samráði ríkisstjórnar við almenning um hagræðingu í ríkisrekstri sem lýkur í dag. Einnig verður litið til fyrri úttekta sem til eru um sama efni auk ábendinga frá forstöðumönnum hjá ríkinu og ráðuneytum.

Gert er ráð fyrir að tillögum verði skilað þann 28. febrúar og að einhverjar þeirra muni nýtast strax í vor en að fjármálaáætlun muni einnig taka mið af vinnu hópsins.

„Ég vil þakka þjóðinni fyrir áhugann og aðstoðina í samráðinu. Við í ríkisstjórninni höfum mikla trú á þessari vinnu og hlökkum til að fá í hendur tillögur hagræðingarhópsins. Þetta er öflugur hópur með fjölbreytta reynslu úr atvinnulífi og opinberum rekstri,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í tilefni af skipun hópsins.

Björn Ingi Victorsson verður formaður hagræðingarhópsins og talsmaður þó að ekki sé gert ráð fyrir að hópurinn sýni á spilin fyrr en niðurstöðum verður skilað. „Ég er fyrst og fremst rekstrarmaður og kem inn í þetta sem slíkur en mér líst mjög vel á verkefnið og nálgun nýrrar ríkisstjórnar. Það eru víða tækifæri til að gera betur og við hlökkum til að taka þennan sprett,“ segir Björn.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta