Samráðsþing um landsáætlun: Eitt lífshlaup, ótal tengingar
Eitt lífshlaup, ótal tengingar er yfirskrift opins samráðsþings um landsáætlun um innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þingið verður haldið þann 20. febrúar 2025 kl. 9:00-12:00 á Grand hótel í Reykjavík. Þetta er þriðja samráðsþingið sem fram fer í tengslum við landsáætlunina.
Á þinginu í ár verður leitast við að kortleggja þjónustu við fatlað fólk í gegnum ævina og hvernig hægt er að koma á og styrkja tengingar á milli aðila. Þá verður farið yfir stöðu þeirra aðgerða sem hófust árið 2024 og vitundarvakningu ýtt úr vör um stöðu og réttindi fatlaðs fólks. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, flytur ávarp á þinginu.
Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir en þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig fyrir fram.
- Skráning: Samráðsþing um landsáætlun
Ath. upphaflega var þingið auglýst frá kl. 13:00-16:00 á Hótel Natura en því hefur verið breytt.