Norrænt varnarsamstarf stendur styrkari fótum en nokkru sinni fyrr
Varnarmálaráðherrar Norðurlandanna funduðu í dag í Helsinki þar sem Finnland gegnir formennsku í norræna varnarsamstarfinu (NORDEFCO) í ár.
Á fundinum ræddu ráðherrarnir þétt og náið samstarf Norðurlandanna á sviði varnarmála, sem er sterkara en nokkru sinni fyrr. Þá var áframhaldandi stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu til umræðu, til að mynda stuðningur við eigin hergagnaframleiðslu Úkraínu.
Í sameiginlegri yfirlýsingu ráðherranna, sem má nálgast hér, undirstrikuðu þeir mikilvægi samstöðu bandalagsríkja á tímum óvissu og aukinnar spennu. Sem aðildarríki Atlantshafsbandalagsins munu þau efla varnarsamstarf sitt, á vettvangi bandalagsins en einnig innan NORDEFCO samstarfsins sem hefur brugðist við breyttri stöðu í alþjóðamálum og versnandi öryggishorfum í Evrópu. Rætt var um mikilvægi starfsemi svæðisherstjórnar Atlantshafsbandalagsins í Norfolk fyrir aðgerðir í Norður-Evrópu.
Varnarmálaráðherrar Norðurlandanna undirrituðu í apríl nýja langtímasýn til ársins 2030 fyrir NORDEFCO. Umfangsmikil vinna við að hrinda henni í framkvæmd á sér þegar stað á Norðurlöndunum til að ná skilgreindum markmiðum, sem styrkir varnar- og fælingarmátt Atlantshafsbandalagsins.
Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, sótti fundinn fyrir Íslands hönd.