Samantekt um hagræðingartillögur almennings
Samantekt um tillögur, hugmyndir og sjónarmið sem bárust í verkefninu Verum hagsýn í rekstri ríkisins hefur verið birt í samráðsgátt. Alls bárust 3.985 umsagnir sem er metfjöldi og um 0,7% þjóðarinnar tók þátt í samráðinu.
Langflestar umsagnir bárust frá einstaklingum en rúmlega 60 bárust frá félagasamtökum og fyrirtækjum. Þá komu tæplega 68 prósent umsagna frá körlum en rúmlega 32 prósent frá konum. Í mörgum umsögnum eru settar fram margar tillögur en samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum er alls um tíu þúsund tillögur að finna í umsögnunum, margar eins eða af mjög svipuðum toga.
Umsagnirnar eru afar fjölbreyttar að efni. Í ljósi mikils fjölda var stuðst við gervigreindarhugbúnað til að aðstoða við að greina og flokka umsagnir eneinnig var farið sérstaklega yfir efni hverrar einustu umsagnar.
Samkvæmt greiningu á tillögunum má skipta þeim í ellefu meginþemu:
-
Sameining stofnana og bætt nýting fasteigna hins opinbera
-
Alþingi og Stjórnarráðið
-
Stafrænar lausnir, sjálfvirknivæðing og endurskoðun opinberrar þjónustu
-
Sala á eignum og breytingar á rekstri fyrirtækja í eigu ríkisins
-
Skattar, endurgreiðslur frá ríkinu og tilfærslukerfi
-
Opinber innkaup
-
Samgöngumál
-
Heilbrigðisþjónusta og lyf
-
Orku- og umhverfismál
-
Utanríkismál og erlent samstarf
-
Ýmsar kerfisbreytingar og hagræðingartillögur
Hagræðingarhópur sem forsætisráðherra skipaði á dögunum mun vinna að nánari greiningu á umsögnunum sem bárust í samráðsgátt og nýta þær í tillögum sínum um hagræðingu og umbætur í ríkisrekstri sem verða kynntar í lok febrúar. Einnig mun hópurinn nýta tillögur sem berast frá forstöðumönnum hjá ríkinu og frá ráðuneytum.