Hoppa yfir valmynd
31. janúar 2025 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Velheppnað málþing um fyrstu þrjú ár innleiðingar farsældarlaganna - upptaka

Farsæld til framtíðar - málþing um fyrstu þrjú ár innleiðingar farsældarlaganna fór fram á Grandhótel mánudaginn 27. janúar síðastliðinn. Um 160 boðsgestir mættu í sal og um 700 fylgdust með á streymi.

Á málþinginu var farið yfir fyrstu þrjú ár innleiðingar laganna hjá hinum ýmsu stofnunum og sveitarfélögum sem hafa hlutverk samkvæmt farsældarlögunum en einnig var horft til framtíðar. Nú þegar 3 ár eru liðin frá gildistöku laganna stöndum við á ákveðnum tímamótunum og því gagnlegt að horfa yfir farinn veg, ræða það hvar við erum stödd, hvernig okkur hefur tekist til og sjá hverju vinna að farsæld barna hefur skilað.

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, setti þingið og fór meðal annars yfir verkefni sem ráðuneytið hefur lagt sérstaklega áherslu á síðustu misseri, það er tilkomu svæðisbundinna farsældarráða ásamt kynningarátaki ætlað börnum og foreldrum. Einnig sagði ráðherra frá verkefnum sem framundan eru og ætlað er að vinna að farsæld allra barna á Íslandi.

Frumkvöðlasveitarfélögin, Akureyri, Akranes, Árborg og Vestmannaeyjar sögðu frá reynslu sinni við innleiðingu farsældarlaganna, áskorunum og tækifærum. Samstarfssamningur sveitarfélaganna við MRN lauk nú um áramótin en þeim var markað þriggja ára tímabil til að starfa sem frumkvöðlasveitarfélög og draga þannig vagninn þegar kemur að innleiðingu farsældarlaganna í þéttu samstarfi við mennta- og barnamálaráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Barna- og fjölskyldustofu. Samvinnan hefur bæði verið lærdómsrík og árangursrík.

Eftir hádegi voru áhugaverð örerindi frá ýmsum þjónustuveitendum sem sinna þjónustu við börn og foreldra. Við fengum m.a. að heyra um verklag, framkvæmd og dæmi um þann ávinning sem hefur orðið af innleiðingu farsældarlaganna frá Sigurði í Húnaþingi vestra, Elísu í Kópavogi, Höllu Dröfn frá Fjölbrautaskóla Suðurlands, Sólveigu frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Þorleifi frá farsældarráðunum, Vigdísi og Christel frá Akranesi, Mariu Liv og Sólbjörtu Ósk frá Barnavernd Reykjavíkur, Jóhönnu Lilju frá þjónustuteymi Grindvíkinga, Páli Ólafssyni frá Barna- og fjölskyldustofu, Önnu Tryggvadóttur frá ráðuneytinu og lokaorðin átti Ólöf Ásta forstjóri Barna- og fjölskyldustofu.

Fundarstjóri var Freyja Sigurgeirsdóttir, lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Mennta- og barnamálaráðuneytið og Barna- og fjölskyldustofa þakka öllum þeim sem héldu erindi og þeim sem mættu og fylgdust með í streymi.

Hægt er að nálgast upptöku af málþinginu og horfa á í heild eða velja eftir þeim erindum sem voru flutt:

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta