Fiskeldissjóður auglýsir eftir umsóknum fyrir árið 2025
Til úthlutunar úr sjóðnum á árinu 2025 eru kr. 456.100.000. Umsóknarfrestur er til kl. 16:00, mánudaginn 10. mars 2025.
Við úthlutun styrkja úr sjóðnum er sérstaklega horft til verkefna sem snúa að:
- Styrkari samfélagsgerð
- Uppbyggingu innviða
- Loftslagsmarkmiðum og umhverfisvernd
- Tengingu við sjókvíaeldi
- Nýsköpun hverskyns, tengd ofangreindum þáttum
Sveitarfélög þar sem sjókvíaeldi er stundað eru hvött til að sækja um. Úthlutunarreglur sjóðsins eru aðgengilegar hér.
Til að umsókn teljist fullnægjandi skulu henni fylgja:
- Lýsing á markmiðum verkefnisins
- Ítarleg og sundurliðuð framkvæmdar- og kostnaðaráætlun um verkefni eða verkþætti
Umsækjendur verða í upphafi að gera grein fyrir því hvort líklegt sé að sótt verði um framhaldsstyrki. Ekki er heimilt að sækja um styrk vegna verkefna sem þegar er lokið. Ekki er heimilt að sækja um styrk vegna verkefna eða verkþætti sem þegar hafa verið styrktir af sjóðnum.
Við úthlutun áskilur stjórn sér rétt til að setja hámark á styrki til verkefna með hliðsjón af úthlutunarfjárhæð og umfangi umsókna hverju sinni.
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00, mánudaginn 10. mars 2025. Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum eyðublaðavef Stjórnarráðsins.
Fiskeldissjóður starfar á grundvelli 7. gr. laga nr. 89/2019 um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð. Sjóðnum er ætlað að veita sveitarfélögum styrki til uppbyggingar innviða, þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað, og styrkja þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á þeim svæðum. Stjórn sjóðsins starfar eftir starfsreglum sjóðsins.