Máltækni: Úthlutun Skerfs styrktarárið 2024
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hefur lokið við úthlutun styrkja til hagnýtingar og innleiðingar íslenskrar máltækni fyrir styrkárið 2024. Styrkirnir, sem voru auglýstir undir heitinu Skerfur, eru hluti af máltækniáætlun 2. Alls voru 12 verkefni styrkt eða 52% umsókna.
Verkefnastjórn máltækniáætlunar, sem í sitja tveir fulltrúar Almannaróms og einn fulltrúi ráðuneytis menningarmála, gerði tillögur til ráðherra að styrkveitingum styrkársins 2024. Alls bárust verkefnastjórninni 23 umsóknir fyrir samtals rúmlega 193 m.kr. Til úthlutunar á styrkárinu voru 60 m.kr. skv. máltækniáætlun.
Skerfur veitir styrki til verkefna sem fela í sér innleiðingu og/eða hagnýtingu á íslenskri máltækni í samræmi við máltækniáætlun 2. Styrkirnir eru ætlaðir til að styðja við þróun og innleiðingu hagnýtra endalausna sem byggja á máltækni. Styrkveiting er háð því að verkefni styðji við meginmarkmið máltækniáætlunar um að gera íslensku gjaldgenga í stafrænum heimi og stuðli að aukinni notkun á íslensku í tæknivörum og hugbúnaði.
Hér á eftir er yfirlit yfir verkefni sem hlutu styrk frá Skerfi fyrir styrkárið 2024:
Umsækjandi |
Verkefni |
Styrkupphæð
|
Landspítali |
Talgreining á samtölum við sjúklinga |
14.590.000 kr. |
Iris Edda Nowenstein |
ALDA: máltækni fyrir talmeinafræðinga |
7.000.000 kr. |
Sundra ehf. |
Sjálfvirk textun kvikmynda og sjónvarpsefnis |
6.580.000 kr. |
RÚV |
Sjálfvirk textun beinna útsendinga |
6.050.000 kr. |
Grammatek |
Ljóslestur fyrir talgervingarforritið Símaróm |
5.062.000 kr. |
Bara tala |
Spjallmenni fyrir íslenskukennslu |
4.750.000 kr. |
Grammatek |
Nýjar talgervilsraddir fyrir Símaróm |
4.500.000 kr. |
Hljóðbókasafnið |
MathCAT Ísland: lausn sem gerir talgervlum kleift að lesa stærðfræði á íslensku |
3.842.575 kr. |
Miðeind |
Málstaður: samantekt og einföldun á texta |
2.250.000 kr. |
Miðeind |
Erlendur: þýðingarkerfi innleitt hjá Landspítala |
2.250.000 kr. |
KatlaCode |
Sjálfvirknivæðing klínískrar kóðunar á Landspítala |
2.000.000 kr. |
Miðeind |
Málrýnir innleiddur í ritstjórnarkerfi RÚV |
1.125.000 kr. |
SAMTALS |
|
59.999.575 kr. |