Styrkir til alþjóðlegra nemakeppna á framhaldsskólastigi í stærðfræði og raungreinum 2025
Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til þátttöku framhaldsskólanema í alþjóðlegum nemakeppnum í stærðfræði og raunvísindum, þ.e. eðlisfræði, efnafræði og líffræði, á árinu 2025.
Markmið styrkjanna er að fjölga nemendum í stærðfræði og raunvísindum. Heildarfjárhæð styrkja á árinu 2025 er allt að 14 m.kr. og eru styrkirnir veittir til að standa straum af ferðakostnaði vegna þátttöku í keppnunum.
Ef umsóknaraðili hefur áður fengið styrk þá þarf hann að hafa skilað greinargerð um hvernig styrknum var ráðstafað. Ekki eru veittir styrkir til verkefna sem hljóta styrki á fjárlögum eða falla undir aðra sjóði ráðuneytisins eða samninga sem gerðir hafa verið við ráðuneytið.
Umsóknir skulu sendar til [email protected] í síðasta lagi 27. febrúar 2025.
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Ólafsdóttir, [email protected] / 545 9500.