Áframhaldandi samningur við Heimilisfrið
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur endurnýjað samning við Heimilisfrið, meðferðar- og þekkingarmiðstöð um ofbeldi í nánum samböndum. Heimilisfriður er sérhæft meðferðarúrræði fyrir þau sem beita eða hafa beitt ofbeldi í nánum samböndum. Lögð er áhersla á að viðkomandi taki ábyrgð á eigin ofbeldishegðun og læri að þróa leiðir til að takast uppbyggilega á við það sem kemur upp í samskiptum við maka.
Heimilisfriður tekur á móti öllum sem telja sig þurfa aðstoð til þess að hætta að beita maka sinn ofbeldi og lögð er áhersla á að viðkomandi þiggi aðstoðina af fúsum og frjálsum vilja. Hjá Heimilisfriði er lögð rík áhersla á að ofbeldishegðun er aldrei ásættanleg en þar er öllum skjólstæðingum mætt með vinsemd og af virðingu.
Þjónustan hefur verið veitt um árabil en Heimilisfriður byggir starfsemi sína á sambærilegu úrræði á Norðurlöndunum, Alternativ til Vold (ATV) í Noregi, og starfar náið með þeim aðilum.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur um árabil verið með samning við Heimilisfrið og kveður samningurinn bæði á um einstaklingsviðtöl og hópmeðferðir. Með samningnum er meðferðin niðurgreidd og þurfa skjólstæðingar einungis að greiða vægt gjald.
Mikil ánægja með meðferðina
Árið 2023 framkvæmdi Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands úttekt á meðferðarúrræðinu, að beiðni ráðuneytisins. Úttektin leiddi í ljós mikla ánægju með meðferð Heimilisfriðar, bæði á meðal skjólstæðinga og maka, og voru viðmælendur sammála um að meðferðin væri nauðsynleg fyrir þau sem beita ofbeldi í nánum samböndum. Dregið hafði úr ofbeldishegðun eftir að meðferð hófst, einkum líkamlegu ofbeldi. Þá töldu flestir aðspurðra að án niðurgreiðslu myndu þeir ekki leita sér meðferðar.
Heimilisfriður er staðsettur í Reykjavík en býður einnig upp á fjarviðtöl og þjónar þannig landinu öllu.Ráðherra ásamt sálfræðingum hjá Heimilisfriði: Jóhönnu Dagbjartsdóttur, Andrési Proppé Ragnarssyni og Mjöll Jónsdóttur.