Ráðherra mælir fyrir frumvarpi vegna framkvæmda sem hafa áhrif á vatnshlot, þ.m.t. vegna Hvammsvirkjunar
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum og lögum um stjórn vatnamála. Málið er á dagskrá Alþingis í dag, miðvikudaginn 12. febrúar. Markmið þess er að bregðast við niðurstöðu dóms Héraðsdóms Reykjavíkur sem kveðinn var upp 15. janúar 2025 í máli nr. E-2457/2024. Með dóminum var ógilt heimild Umhverfisstofnunar frá 9. apríl 2024 til breytinga á vatnshlotinu Þjórsá 1 vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Hvammsvirkjun sem og ákvörðun Orkustofnunar frá 12. september 2024 um að veita Landsvirkjun leyfi til að reisa og reka raforkuverið Hvammsvirkjun.
Boðaðar lagabreytingar eru að mati ráðherra nauðsynlegar til að bregðast við þeirri óvissu sem skapast hefur í kjölfar niðurstöðu fyrrnefnds héraðsdóms þar sem niðurstaðan útilokar í raun hvers kyns framkvæmdir á Íslandi sem leiða til breytinga á vatnshloti. Hér getur verið um að ræða framkvæmdir vegna vatnsaflsvirkjana og ýmsar aðrar framkvæmdir, svo sem flóðavarnir, vegagerð og gerð siglingavega svo fáein dæmi séu tekin.
Með frumvarpinu er lagt til að skerpt verði á orðalagi a-liðar 1. mgr. 18. gr. laga um stjórn vatnamála þannig að hafið sé yfir allan vafa að það taki til breytinga á vatnshloti vegna framkvæmda, svo sem vatnsaflsvirkjana. Þá er lagt til að Umhverfis- og orkustofnun verði heimilt í sérstökum undantekningartilvikum að fallast á flýtimeðferð við afgreiðslu umsókna um virkjanaleyfi.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- orku- og loftslagsráðherra: „Með frumvarpinu eyðum við strax óvissu og komum í veg fyrir frekari tafir á þjóðhagslega mikilvægum framkvæmdum. Þetta er í samræmi við stefnu ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um aukna orkuöflun í þágu orkuöryggis, orkuskipta og verðmætasköpunar um allt land.“