Hoppa yfir valmynd
12. febrúar 2025 Matvælaráðuneytið

Jarðræktarstyrkir, landgreiðslur og tjónabætur vegna ágangs álfta og gæsa

Matvælaráðuneytið afgreiddi skömmu fyrir áramót jarðræktarstyrki, landgreiðslur og tjónabætur vegna tjóns af völdum álfta og gæsa á ræktunarlandi bænda vegna ársins 2024.

Styrkir vegna jarðræktar námu alls 473.260.084 kr. og 474.795.502 kr. vegna landgreiðslna, alls 948.055.586 kr.

Landgreiðslur voru veittar vegna 79,277 hektara. Einingarverð landgreiðslna er 5,989 kr. pr. hektara (ha). Framlög vegna landgreiðslna taka mið af fjölda hektara sem sótt er um og deilast jafnt á þau svæði sem sótt er um stuðning fyrir. Til grundvallar útreikningi á jarðræktarstyrkjum lágu 11.572 hektarar. Einingarverð jarðræktarstuðnings var 40.897 kr./ha á árinu 2024. Fyrirframgreiðsla vegna kornræktar sem greidd var 15. júní 2024, kom til frádráttar greiðslunni og nam frádrátturinn 25% af einingaverði jarðræktarstyrks á árinu 2023. Sérstakt álag vegna ágangs álfta og gæsa reiknaðist 127 ha hjá 24 framleiðendum.

Útreikningar um landstærðir og ræktun byggjast á upplýsingum úr jarðræktarskýrsluhaldi á vefsíðunni Jörð.is. Umsækjendur hafa fengið rafrænt bréf með upplýsingum um úthlutun jarðræktar- og landgreiðslustyrkja sem finna má inn í jarðabók Afurðar og á Ísland.is.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta