Hoppa yfir valmynd
13. febrúar 2025 Matvælaráðuneytið

Hækkun lágmarksverðs mjólkur

Hækkun lágmarksverðs mjólkur - myndiStock/naturalbox

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur.

Eftirfarandi verðbreyting mun taka gildi þann 17. febrúar 2025:
  • Lágmarksverð 1.fl. mjólkur til bænda hækkar um 0,46% úr 136,30 kr./ltr í 136,93 kr./ltr.
  • Eftirfarandi verðbreyting mun taka gildi þann 17. febrúar 2025:
    Heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara sem nefndin verðleggur hækkar um 1,00%.

Hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda er til komin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu mjólkur frá síðustu verðákvörðun sem byggði á verðlagi í september og tók gildi í október 2024. Frá síðustu verðákvörðun hafa gjaldaliðir í verðlagsgrundvelli kúabús hækkað um 0,46%. Heildsöluverð á mjólk og mjólkurvörum hækkar um sem nemur kostnaðarhækkun vegna hráefniskaupa og hækkun vinnslu- og dreifingarkostnaðar.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta