Hoppa yfir valmynd
13. febrúar 2025 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Hreindýrakvóti ársins 2025

Hreindýr - myndSébastien Goldberg/Unsplash

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ákveðið veiðiheimildir til hreindýraveiða, gjaldskrá veiðileyfa fyrir árið 2025 og skiptingu þeirra milli sveitarfélaga, að fengnum tillögum frá Náttúruverndarstofnun.

Alls verður heimilt að veiða 665 hreindýr á veiðitímanum, 265 kýr og 400 tarfa. Þetta er 135 hreindýrum færra en á undanförnu ári sem stafar fyrst og fremst af áframhaldandi fækkun í stofninum. Ástæður þessarar fækkunar eru ekki þekktar en m.a. hefur verið nefnt mögulegt aukið veiðiálag fyrri ára vegna ofmats á stofnstærð.

Veiðitími tarfa er frá 15. júlí til 15. september. Veiðitími kúa er frá 1. ágúst til 20. september.

Fyrstu tvær vikur veiðitímabilsins er veiðimönnum gert að forðast í lengstu lög að fella mylkar kýr svo draga megi eftir megni úr áhrifum veiðanna á kálfa. Þess í stað eru veiðimenn eindregið hvattir til að veiða eingöngu geldar kýr. Er í þessu sambandi bent á hlutverk og skyldur leiðsögumanna við að aðstoða og leiðbeina veiðimönnum við val á bráð.

Þá eru veturgamlir tarfar alfriðaðir og miðast tarfaveiði því við tarfa sem eru tveggja vetra og eldri.

Óheimilt er að veiða kálfa.

Heimildirnar eru veittar með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum sem kalli á endurskoðun veiðiheimilda.

Líkt og fyrri ár skiptist veiðin milli níu veiðisvæða og eru mörk þeirra og fjöldi dýra á hverju svæði tilgreind nánar í meðfylgjandi auglýsingu.

Gjald fyrir úthlutun hreindýraveiðileyfis fyrir tarf er 231.600 kr. og 132.000 kr. fyrir kú.

Náttúruverndarstofnun auglýsir og sér um sölu allra veiðiheimildanna.

Meðfylgjandi er auglýsing um hreindýraveiðar árið 2025.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta