Hoppa yfir valmynd
13. febrúar 2025 Matvælaráðuneytið

Opið fyrir umsóknir vegna þróunarverkefna búgreina, garðyrkju, sauðfjárræktar, nautgriparæktar og hrossaræktar

Athygli er vakin á að umsóknarfrestur um þróunarverkefni búgreina er til 15. mars 2025. Auglýst er eftir umsóknum tvisvar á ári.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Afurð, stafrænu stjórnsýslukerfi matvælaráðuneytisins.
Í nautgriparækt eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska nautgriparækt og fela í sér rannsóknir og þróunarverkefni.

Í sauðfjárrækt eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska sauðfjárrækt og falla undir kennslu, rannsóknir, leiðbeiningar og/eða þróun í sauðfjárrækt.
Í hrossarækt eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska hrossarækt og fela í sér að viðhalda verðmæti eiginleika í íslenska hrossastofninum og velferðar hestsins.

Í garðyrkju eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska garðyrkju og falla undir ráðgjafaverkefni, kynningaverkefni, rannsókna- eða tilraunaverkefni, vöruþróunarverkefni, verkefni sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og endurmenntunarverkefni.

Umóknir berist í Afurð.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta