Áform um sama gjald sjúkratryggðra fyrir röntgenmynd af brjóstum vegna krabbameinsleitar
Birt hafa verið drög að breytingum á reglugerð um gjaldtöku fyrir röntgenmyndatöku af brjóstum vegna krabbameinsleitar. Alma Möller, heilbrigðisráðherra hefur gert tillögu að breytingum á reglugerðinni á þann hátt að allir sjúkratryggðir greiði 500 kr. fyrir myndatöku einu sinni á ári. Gildir þá einu hvort myndatakan er vegna lýðgrundaðrar skimunar, eftirlits í kjölfar krabbameinsleitar eða liður í eftirliti kvenna í áhættuhópi, s.s. vegna BRCA arfgerðar. Síðastliðið haust var gjald fyrir lýðgrundaða skimun fyrir krabbameini í brjóstum lækkað úr rúmum 6.000 kr. í 500 kr. til samræmis við gjald fyrir leghálskrabbameinsskimun. Greiðsluþátttaka sjúklinga fyrir röntgenmyndatöku af brjóstum sem ekki er liður í lýðgrundaðri skimun hélst hins vegar óbreytt, eða um 12.500 kr. og reiknaðist það inn í greiðsluþátttökukerfi sjúkratrygginga.
Brakkasamtökin hafa ítrekað gagnrýnt að konur sem eru í áhættuhópi fyrir brjóstakrabbameini vegna BRCA arfgerðar greiði ekki sama gjald fyrir röntgenmyndatöku af brjóstum vegna nauðsynlegs eftirlits og greitt er vegna lýðgrundaðrar skimunar. Hafa samtökin m.a. bent á að um sams konar myndatöku sé að ræða, sama tækjabúnað og sömu þjónustu. Eins hafa þau fært rök fyrir því að gjaldið sé það hátt að það sé hindrun fyrir sumar konur í áhættuhópnum sem mæti þar með ekki í nauðsynlegt eftirlit. Þá hafa athugasemdir borist frá Krabbameinsfélaginu að því er varðar konur sem þurfa á eftirliti að halda eftir meðferð vegna krabbameins í brjósti einu sinni á ári í fimm ár eftir að meðferð lýkur.
Góð og skynsamleg niðurstaða
„Ég hef farið vel yfir framangreind sjónarmið og átti einnig gagnlegan fund með Brakkasamtökunum 30. janúar síðastliðinn. Þau rök sem hafa verið færð fram til breytinga á gjaldtökunni tel ég mikilvæg. Ég setti því af stað vinnu í ráðuneytinu til að fara í saumana á málinu og tel okkur hafa komist að góðri og skynsamlegri niðurstöðu“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.
Við mat ráðuneytisins var horft til heilbrigðisstefnu og stefnu stjórnvalda í krabbameinsmálum. Einnig hefur matið snúið að þeim meginsjónarmiðum sem greiðsluþátttökukerfi heilbrigðisþjónustu byggist á, um að gæta jafnræðis gagnvart sjúklingum, óháð sjúkdómum. Niðurstaðan er sú að forsendur séu til að gera þær breytingar sem lagðar eru til í meðfylgjandi drögum að reglugerð. Réttur sjúkratryggðra til að greiða 500 kr. fyrir röntgengmyndatöku vegna krabbameinsleitar í brjóstum verði þannig rýmkaður og taki ekki aðeins til lýðgrundaðrar skimunar líkt og áður, heldur gildi jafnt um alla sjúkratryggða, að hámarki einu sinni á ári.