Hoppa yfir valmynd
14. febrúar 2025 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Nýtt verklag við val í stjórnir ríkisfyrirtækja

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra - myndStjórnarráðið/Bernharð

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur sett reglur um val á einstaklingum til stjórnarsetu í ríkisfyrirtækjum, sem eiga að tryggja að tilnefndir stjórnarmenn veljist á grundvelli hæfni, menntunar eða reynslu. Auglýst hefur verið eftir áhugasömum einstaklingum til að gefa kost á sér í stjórnir stærri ríkisfyrirtækja sem eru: Landsvirkjun, Landsnet, Rarik, Orkubú Vestfjarða, Íslandspóstur, Isavia og Harpa.

Í reglunum segir að samsetning stjórna skuli vera með þeim hætti að tryggð sé næg þekking, kunnátta, fjölbreytni og reynsla einstaklinga sem þar eiga sæti. Stjórnarmenn skulu vera óháðir fyrirtækinu og stjórnendum þess og gæta þurfi að því að ekki sé hætta á hagsmunaárekstrum vegna annarra starfa stjórnarmanna. Hvorki starfsmenn fyrirtækisins né kjörnir fulltrúar á Alþingi eða í sveitarstjórnum skulu tilnefndir í stjórnir ríkisfyrirtækja.

Valnefnd skal tilnefna tvo aðila fyrir hvert stjórnarsæti og skal ráðherra velja úr þeim hópi í stjórnirnar. Við samsetningu stjórnar skal valnefnd líta til þess að innan hennar sé hæfileg breidd hvað varðar meðal annars menntun, faglegan bakgrunn, kyn, þekkingu og reynslu.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra:

„Það skiptir miklu máli að stjórnir fyrirtækja í eigu ríkisins séu skipaðar hæfum einstaklingum með haldgóða reynslu eða góða þekkingu sem hæfir viðkomandi fyrirtæki. Því er mikilvægt að val á einstaklingum í stjórnir ríkisfyrirtækja fari fram á faglegum forsendum þannig að einstakir stjórnarmenn og stjórnin í heild þjóni sem best hagsmunum viðkomandi fyrirtækis. Við höfum viðhaft svipað fyrirkomulag við val í stjórnir bankanna undanfarin ár með góðum árangri. Síðast en ekki síst er þessi leið í samræmi við leiðbeiningar OECD um góða stjórnarhætti þegar kemur að tilnefningu í stjórnir opinberra fyrirtækja.“  


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta