Hoppa yfir valmynd
16. febrúar 2025 Utanríkisráðuneytið

Úkraína í brennidepli á öryggisráðstefnunni í München

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ræðir við Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu. - mynd

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti öryggisráðstefnuna í München sem lauk í dag, ásamt Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Ráðamenn alls staðar að úr heiminum sækja ráðstefnuna og gafst ráðherra tækifæri til að ræða brýn hagsmunamál Íslands og þróun alþjóða- og öryggismála almennt við starfssystkini sín.

Ráðstefnan hefur um árabil verið mikilvægur vettvangur umræðu og samtals um alþjóða- og öryggismál og var árið í ár engin undantekning. „Ég held að öllum megi vera ljóst að viðburðir helgarinnar og síðustu viku hafa vakið Evrópu til umhugsunar. Það er brýnt hagsmunamál fyrir Ísland að samkomulag náist um langvarandi og réttlátan frið í Úkraínu á grundvelli alþjóðalaga og nauðsynlegt að Evrópa komist að samningaborðinu þegar semja á um málefni sem varða öryggishagsmuni álfunnar allrar,“ segir Þorgerður Katrín. „Ísland og önnur bandalagsríki beggja vegna Atlantsála eiga ríkra hagsmuna að gæta að samstarfið innan Atlantshafsbandalagsins verði áfram sterkt. Evrópuríkin munu óumdeilanlega þurfa að axla þyngri byrðar þegar kemur að öryggi Evrópu og friði í Úkraínu og við sjáum að þar er einnig horft til okkar. Það má segja að við höfum enn á ný verið minnt á mikilvægi grunngilda okkar um frið, lýðræði og frelsi sem víða um heim eiga undir högg að sækja.“ 

Utanríkisráðherra átti fundi með utanríkisráðherrum Egyptalands, Filippseyja, Grænlands, Írlands, Moldóvu, Tékklands og loftslagsmálastjóra Evrópusambandsins, og Sviatlana Tsikhanouskaya, leiðtoga lýðræðisafla Belarús, auk fjölda óformlegra samtala. Þá hitti hún forsætis- og utanríkisráðherra Palestínu ásamt Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Þá sótti hún fundi um öryggismál á norðurslóðum og þróun alþjóðakerfisins og átti fundi með utanríkisráðherrum Norðurlandanna, Eystrasaltsríkjanna og Úkraínu, og með öðrum kvenvarnarmálaráðherrum.

 
  • Úkraína í brennidepli á öryggisráðstefnunni í München - mynd úr myndasafni númer 1
  • Úkraína í brennidepli á öryggisráðstefnunni í München - mynd úr myndasafni númer 2
  • Úkraína í brennidepli á öryggisráðstefnunni í München - mynd úr myndasafni númer 3

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta