Hoppa yfir valmynd
17. febrúar 2025 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Innviðaráðuneytið

Aðgerðahópur skipaður um bráðaaðgerðir í húsnæðismálum

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra - mynd

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað aðgerðahóp um bráðaaðgerðir í húsnæðismálum og úrbætur til lengri tíma. Í hópnum sitja þrír þingmenn, einn úr hverjum stjórnarflokki, auk fulltrúa frá ráðuneytinu og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Hópurinn starfar út kjörtímabilið í samræmi við áherslur nýrrar ríkisstjórnar. 

Hlutverk aðgerðahópsins er fyrst og fremst að kortleggja áskoranir í húsnæðismálum og leggja fram tillögur að aðgerðum. Markmiðið er að landsmenn búi við húsnæðisöryggi og jafnrétti í húsnæðismálum og að skapa jafnvægi á húsnæðismarkaði. 

„Við boðuðum bráðaaðgerðir í húsnæðismálum í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar enda þolir ástandið á húsnæðismarkaði enga bið. Að sama skapi er mjög mikilvægt að aðgerðahópurinn horfi fram á veginn og leggi fram tillögur að aðgerðum og kerfisbreytingum til lengri tíma til að koma á heilbrigðari húsnæðismarkaði. Við ætlum okkur að ráðast í þjóðarátak í húsnæðisuppbyggingu þar sem áhersla verður lögð á að fjölga íbúðum með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði og auka húsnæðisöryggi fólks,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Vinna hópsins grundvallast á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins svo og fyrirliggjandi aðgerðaáætlun húsnæðisstefnu sem samþykkt var á Alþingi síðastliðið sumar. Hún er einnig liður í endurskoðun húsnæðisstefnu og eftirfylgni með skuldbindingum stjórnvalda til að greiða fyrir gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði í febrúar 2024. 

Aðgerðahópurinn er þannig skipaður:

Ragnar Þór Ingólfsson, þingmaður Flokks fólksins, formaður
Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar
Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar
Lísa Margrét Sigurðardóttir, lögfræðingur í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu 
Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Ekki er greitt fyrir setu í hópnum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta