Hoppa yfir valmynd
17. febrúar 2025 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Sala ríkisins á Íslandsbanka og erindi Arion banka um sameiningu

Í kjölfar tilkynningar ríkisins sl. föstudag um fyrirhugað opið almennt útboð á hlut ríkisins í Íslandsbanka, birti Arion banki erindi til Íslandsbanka um áhuga sinn á viðræðum um sameiningu bankanna. Í erindinu kom m.a. fram að hluthöfum Íslandsbanka, þ.m.t. ríkinu, stæðu til boða hlutabréf í sameinuðum banka samkvæmt tiltekinni aðferðafræði.

Frestur stjórnar Íslandsbanka til að svara Arion banka er 14 dagar. Í ljósi þess að um er að ræða stórt mál, sem varðar tvo skráða banka á samkeppnismarkaði með fjölbreyttan hluthafahóp, er eðlilegt og nauðsynlegt að málið verðið metið með vönduðum hætti af hálfu ríkisins, stærsta hluthafans, áður en nokkur afstaða er tekin til erindis Arion banka.

Ríkið mun halda áfram að vinna að undirbúningi á sölu á hlut sínum í Íslandsbanka í almennu og opnu útboði. Frumvarp um söluferlið var birt í samráðsgátt fyrir helgi og að loknu samráði verður málið tekið fyrir á Alþingi. Í frumvarpinu er lögð sérstök áhersla á framkvæmdina á útboðsferlinu, þ.e. á hlutlægni, hagkvæmni, jafnræði og gagnsæi, ásamt forgangi almennings.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta