Menningarsjóður Íslands og Finnlands auglýsir eftir umsóknum
Tilgangur menningarsjóðs Íslands og Finnlands er að efla menningartengsl milli landanna. Sjóðurinn veitir árlega styrki til einstaklinga, samtaka, félaga og stofnana vegna verkefna sem geta orðið til þess að efla samskipti milli Íslands og Finnlands á sviði menningar, lista, atvinnulífs og þjóðlífs almennt. Frekari upplýsingar um Menningarsjóð Íslands og Finnlands má finna á vefnum www.hanaholmen.fi.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum vegna verkefna sem eru fyrirhuguð á síðari hluta ársins 2025 og fyrri hluta ársins 2026. Frestur til að leggja inn umsóknir um styrki úr sjóðnum vegna þessa tímabils rennur út 31. mars 2025.
Æskilegt er að umsóknir séu ritaðar á sænsku, dönsku, norsku, finnsku eða ensku. Einungis er hægt að sækja um rafrænt á - sjá nánar hér.
Fyrirspurnir vegna umsókna má senda á: [email protected]
Stjórn Menningarsjóðs Íslands og Finnlands.