Hoppa yfir valmynd
19. febrúar 2025 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Örn Hrafnkelsson skipaður í embætti landsbókavarðar

Örn Hrafnkelsson verðandi landsbókavörður og Logi Már Einarsson ráðherra. - mynd
Menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra Logi Már Einarsson hefur skipað Örn Hrafnkelsson í embætti landsbókavarðar. Alls bárust 15 umsóknir um starfið sem auglýst var 11. október sl.
Örn mun taka við starfi landsbókavarðar um næstu mánaðarmót samhliða því að Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir fer á eftirlaun eftir langan og farsælan feril við Landsbókasafn Íslands.

Örn er með B.A. og M.A. próf í sagnfræði og M.P.A. gráðu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Frá árinu 1993 hefur Örn starfað hjá Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni. Í fyrstu sem bókavörður í þjóðdeild en síðar sem fagstjóri og forstöðumaður handritadeildar. Frá árinu 2011 hefur Örn gegnt starfi sviðsstjóra við varðveisludeild Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Örn er mikill áhugamaður um handritalestur og útgáfu og hefur bæði skrifað fjölda greina þess efnis og erindi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta