Hoppa yfir valmynd
21. febrúar 2025 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Frumvarp um breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda í samráðsgátt

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi um breytingar á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda.

Með frumvarpinu er ætlunin að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og -ráðsins (ESB) 2019/883 frá 17. apríl 2019 um móttökuaðstöðu í höfnum til afhendingar úrgangs frá skipum. Markmið tilskipunarinnar er að vernda hafumhverfið frá neikvæðum áhrifum úrgangs frá skipum sem nota hafnir innan bandalagsins, á sama tíma og greið skipaumferð er tryggð.  Þetta er gert með því að bæta og tryggja móttökuaðstöðu í höfnum og afhendingu úrgangs í höfnum til þess að koma í veg fyrir að úrgangur sé losaður í hafið.

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda hvað varðar skilgreiningar á hugtökum, skyldu hafnarstjórna að gera áætlun um móttöku úrgangs og farmleifa og breytingu á gildissviði laganna varðandi tiltekin skip. Samsvarandi breyting er gerð á hafnalögum

Frumvarpið felur í sér breytingu á tilskipun 2010/65/ESB og um niðurfellingu tilskipunar 2000/59/EB. Hún kemur í stað eldri tilskipunar um sama efni, þ.e. tilskipun 2000/59/EB, sem var innleidd hér á landi með lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, hafnalögum, nr. 61/2003, reglugerð um móttöku á úrgangi og farmleifum í höfnum, nr. 1200/2014 og reglugerð um gjaldtöku í höfnun vegna losunar, móttöku, meðhöndlunar og förgunar úrgangs og farmleifa frá skipum, nr. 1201/2014.

Athygli er vakin á því að umsagnarfrestur vegna frumvarpsins í Samráðsgátt stjórnvalda er til 7. mars 2025.

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda (móttaka úrgangs í höfnum)

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta