Fyrsta úthlutun úr afrekssjóði í skák
Fyrsta úthlutun úr nýjum afrekssjóði í skák liggur nú fyrir. Alls hljóta 15 skákmenn styrki á árinu 2025.
Auglýst var eftir umsóknum í lok síðasta árs. Alls bárust 19 umsóknir frá 18 skákmönnum, þar af 10 í flokkinn efnilegir skákmenn og 9 í flokkinn afreksskákmenn.
Við mat á umsóknum í flokkinn efnilegir skákmenn var tekið tillit til stiga, árangurs og virkni árið 2024 og áætlana um virkni í skák sem umsækjandi lagði fram fyrir árið 2025.
Við mat á umsóknum í flokkinn afreksskákmenn var tekið tillit til þess hverjir njóta forgangs, sbr. ný lög um skák. Þá var litið til stöðu á heimslista, virkni síðastliðið ár með tilliti til fjölda tefldra kappskáka, og áætlana um virkni á árinu 2025.
Mánaðarlegir styrkir til afreksskákmanna á árinu 2025 eru 490.000 kr. en 225.000 kr. hjá efnilegum skákmönnum. Um verktakagreiðslur er að ræða.
Eftirfarandi skákmenn hlutu styrk úr afrekssjóði. Úthlutunin nær yfir tímabilið 1. febrúar – 31. desember 2025.
Ellefu mánuðir
- Guðmundur Kjartansson
- Hannes Hlífar Stefánsson
- Héðinn Steinn Steingrímsson
- Lenka Ptácníková
- Vignir Vatnar Stefánsson
Níu mánuðir
- Bragi Þorfinnsson
Þrír mánuðir
- Bárður Örn Birkisson*
- Björn Hólm Birkisson*
- Hilmir Freyr Heimisson
Tveir mánuðir
- Adam Omarsson*
- Alieksandr Hafthorovich Domalchuk-Jonasson
- Benedikt Briem*
- Dagur Ragnarsson
- Gunnar Erik Guðmundsson*
Einn mánuður
- Birkir Ísak Jóhannsson*
* Skákmenn sem fá styrk sem efnilegir skákmenn.
Úthlutunin byggir á nýjum lögum um skák og nýrri reglugerð um afrekssjóð í skák.